Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Síða 93
Árferði
Árið 1982 var kalt og heldur úrkomusamt. Meðalhiti í
Reykjavík var 4.0 stig, sem er einu stigi undir meðallagi. Á
Akureyri var meðalhitinn 3.0 stig, og er það einnig einu
stigi undir meðallagi. Úrkoma í Reykjavík var 880 mm,
sem er 75 mm yfir meðallagi, en sólskinsstundir voru 1150,
tæplega 100 stundum færri en í meðalári. Á Akureyri var
ársúrkoma 550 mm, sem er 76 mm meira en í meðalári, en
sólskinsstundir voru einnig fleiri en í meðalári nyrðra eða
1019, en meðaltalið er 962. Svo glatt skein sólin á Akureyri
í júní, að sett var nýtt sólskinsmet í mánuðinum, 262 klst.
Janúar var kaldur um allt land, og kom harður frosta-
kafli 2. —10. Pá var snjólétt sunnanlands, en snjóþungt
nyrðra. Veður var yfirleitt stillt og stormdagar fáir.
Stórviðri gekk þó yfir Austurland 14. janúar og olli mestu
tjóni á Borgarfirði. — í febrúar hlýnaði, og var meðalhiti
mánaðarins 2.5 stigum yfir meðallagi um allt land. Úr-
komusamt var og stormasamt. Um miðjan mánuðinn urðu
flóð, t. d. í Elliðaánum. - í marz var hitinn yfir meðallagi á
austanverðu landinu, en undir meðallagi vestra. Svipað var
um aprfl, en þá voru suðlægir vindar ráðandi og því oft hlýtt
norðanlands og austan, en úrkomusamt syðra. Mánuðinum
lauk með slæmu hreti, sem stóð í sex daga eða til 5. maí. Pá
komst frostið í 7.7 stig í Reykjavík og 10.1 stig á Akureyri.
Þetta er mesta frost, sem mælzt hefur í maí í Reykjavík og
hið næstmesta á Akureyri. í heild var maí kaldur og meðal-
hiti um tveimur stigum lægri en í meðalári. — í júní hlýnaði
nokkuð suðvestanlands, en annars staðar var svalt. Þurr-
viðri voru á Norðurlandi, en úrkomusamt syðra. — í júlí
komu góðir hlýindakaflar á Norður- og Austurlandi, en
syðra var svalara og sólfar minna. Úrkoma var töluverð um
allt land. — Ágúst og september voru kaldir, einkum
september, og hefur ekki orðið jafnkalt í Reykjavík þessa
tvo mánuði nema tvisvar á heilli öld, þ. e. 1886 og 1921. — í
október var löngum hæglætisveðrátta og snjóar ekki til
trafala. — Nóvember var umhleypingasamur og hiti 2.5—
(91)