Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 97
ágæt í vestari sveitum Austur-Barðastrandarsýslu, Þing-
eyjarsýslum og Lóni. Frostnætur seint í ágúst ollu því, að
berin nýttust ekki sem skyldi.
Slátrað var 941.676 kindum í sláturhúsum (988.002 árið
áður). Af því voru 837.648 dilkar (893.916) og 104.028 af
fullorðnu fé (94.086). Meðalfallþungi dilka var 13.77 kg,
sem er 0.12 kg meiri fallþungi en árið áður (13.65). Kinda-
kjötsframleiðslan var 13.766 lestir, sem er 458 lestum
minna en árið áður (14.216). — Mjólkurframleiðsla var
104.572.474 lítrar (102.958.972). Smjörframleiðsla var 916
lestir (964), ostaframleiðsla 2.640 lestir (3.058). Slátrað var
21.275 nautgripum (25.080). Nautgripakjöt var 2.222 lestir
(2.267). Slátrað var 7.633 hrossum (8.200). Hrossakjöts-
framleiðsla var 838 lestir (911), svínakjötsframleiðsla 948
lestir (950), hænsnakjötsframleiðsla 750 lestir (900) og
eggjaframleiðsla 2.500 lestir (2.500).
Loðdýrarækt óx enn mjög á árinu, og voru stofnuð 57 ný
bú, en loðdýrabú eru nú 86. Af þeim eru 80 aðeins með
blárefi, en 6 eru bæði með minka og refi. Bústofn loðdýra-
búanna er nú um 4.250 refalæður og 6.500 minkalæður.
Framleidd voru 10.500 refaskinn (4.700) og 25.000 minka-
skinn (23.000). Fyrir dyrum stendur að skipta um stofn á
þremur minkabúum vegna veirusjúkdóms.
Búnaðarþing var haldið í Reykjavík um mánaðamótin
febrúar—marz. Aðalfundur Stéttarsambands bænda var
haldinn í Borgarnesi í byrjun september.
Hin nýja bygging Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
að Keldnaholti var formlega afhent landbúnaðarráðu-
neytinu 29. júní. — Aðalfundur Skógræktarfélag íslands
var haldinn á Akureyri 27.-29. ágúst. — Hollenzkt fyrir-
tæki bauðst í nóvember til þess að kaupa allt fáanlegt
íslenzkt dilkakjöt. Boðnir voru 1400 dollarar fyrir tonnið.
Ekki varð af sölu. — Til nýmæla taldist, að seld voru 86
fonn af fersku hrossakjöti til Frakklands.
Búfjáreign íslendinga var í árslok (í svigum tölur frá
1981):
(95)