Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 105
júní, Daniel N. M. Mloka frá Tanzaníu (aðsetur í Stokk-
hólmi) og Kamol Kaosayananda frá Thailandi (aðsetur í
Kaupmannahöfn). — 13. júlí, Moncef Ghariani frá Túnis
(aðsetur í Stokkhólmi). — 25. ágúst, Louis Legendre frá
Frakklandi. — 8. október, Martin G. Isaksson frá Finn-
landi. — 27. október, Nguyen Tuan Lieu frá Viet Nam (að-
setur í Bonn) og Hardev Bhalla frá Indlandi (aðsetur í
Ósló). — 11. nóvember, Hans G. Rudofsky frá Austurríki
(aðsetur í Kaupmannahöfn) og Fernando F. Ibarra frá
Kúbu (aðsetur í Stokkhólmi). — 2. desember, Humberto
B. Santos frá Grænhöfðaeyjum (aðsetur í Haag) og Shin
Sang Ku frá alþýðulýðveldinu Kóreu (aðsetur í Stokk-
hólmi).
Rœðismenn: Eftirtaldir íslendingar hafa verið útnefndir
sem ræðismenn á árinu 1982: — Fyrir Sambandslýðveldið
Þýzkaland: Svanur Eiríksson á Akureyri, Karl Kortsson á
Hellu, Úlfur Gunnarsson á ísafirði, Kristinn Friðþjófsson á
Patreksfirði og Pétur Blöndal á Seyðisfirði. — Fyrir Japan:
Ólafur B. Thors í Reykjavík (aðalræðismaður). — Fyrir
Svíþjóð: Gunnlaugur P. Kristinsson á Akureyri, Stefán
Jóhannsson á Seyðisfirði og Björn Jónsson á Siglufirði. —
Fyrir Túnis: Gunnar J. Friðriksson í Reykjavík (aðalræðis-
maður).
Heilbrigðismál
í febrúar og marz komu upp nokkur tilfelli af taugaveiki-
bróður í Reykjavík. Sjúkdómurinn var rakinn til sýktra
skjaldbaka, sem fluttar höfðu verið ólöglega til landsins. —
í byrjun maí var stofnað sérstakt landsráð gegn krabba-
meini. Forseti íslands, forsætisráðherra og biskup sitja í
heiðursráði. — Ný endurhæfingardeild fyrir hjartasjúklinga
var tekin í notkun í Reykjavík í júní. — Undirritaður var í
september samningur um gagnkvæma sjúkrahjálp milli ís-
lands og Stóra-Bretlands. — Landspítalinn fékk nýtt tölvu-
sneiðmyndatæki í október. Pað kostaði 12 milljónir króna.
- 30. október var landssöfnun Krabbameinsfélagsins. Alls
söfnuðust 12.809.000 kr. þennan dag. Af einstökum sveit-
(103)