Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 106
arfélögum lögðu menn mest fram í Öxnadalshreppi eða 189
kr. á mann. Ef litið er á kjördæmin, urðu Austfirðingar
hæstir, en þeir lögðu fram 66 kr. á hvern íbúa.
Heimsóknir
Á annað hundrað norrænir jarðvísindamenn sóttu mót í
Reykjavík í janúar. Mótið var haldið til heiðurs Sigurði
Þórarinssyni sjötugum. Alþjóðleg ráðstefna um rannsóknir
og verndun laxastofna var haldin í Reykjavík í janúar.
Hjónin Vita Andersen rithöfundur og Mogens Camre,
þingmaður danskra sósíaldemókrata, komu til íslands í
janúar. Bæði héldu þau fyrirlestra, hún um bókmenntir og
kvennabaráttu, en hann um stjórnmál. Utanríkisráðherra
Ungverjalands Frigyes Puja kom í heimsókn til Ólafs Jó-
hannessonar í janúar. Um mánaðamótin janúar—febrúar
kom norski verkfræðingurinn Karl Georg Höyer og hélt
fyrirlestra á Akureyri og í Reykjavík um félagsleg áhrif
stóriðju. — Franskur fiðluleikari, Birgitte Engerer, lék með
Sinfoníuhljómsveitinni í febrúar. f sama mánuði kom Knud
Jörgensen, yfirhershöfðingi Dana, til íslands og flutti fyrir-
lestur. Skákmeistarinn Victor Korchnoi kom í febrúar og
skýrði skákir á Reykjavíkurskákmótinu. Dr. Rolf Kjell-
ström frá Nordiska museet í Stokkhólmi hélt fyrirlestra um
Sama í febrúar. Listakonan Rose-Marie Huuva frá Kiruna
talaði einnig um Sama og sýndi myndverk sín. Vincent
McGee, stjórnarformaður Amnesty International í Banda-
ríkjunum, kom til íslands í febrúar. í lok mánaðarins kom
Svíinn dr. Curt Nicolin til íslands og flutti fyrirlestur um
vandamál velferðarríkis. Um sömu mundir kynnti Lindiwe
Mabuzar frá Suður-Afríku kynþáttaaðskilnaðarstefnuna og
starfsemi Afríska þjóðarráðsins (ANC). í febrúar og marz
var Sir Anton Dolin, þekktur brezkur ballettmaður, á
íslandi og stjórnaði æfingum á Giselle. — í marz flutti
franski sagnfræðingurinn Régine Pernoud fyrirlestur um
kvennasögu. f sama mánuði talaði dr. Michael Kriegsfeld
um Gestalt-sálarfræði. f marz flutti Daninn Niels Jórgen
Hagerup erindi um þróun varnarmála í ríkjum Efnahags-
(104)