Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 111
norrænu blindrasamtakanna. Gro Harlem Brundtland,
fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, heimsótti ísland í
október og ræddi um friðar- og afvopnunarmál. f sama
mánuði kom finnski rithöfundurinn Aarni Krohn og hélt
fyrirlestra. Þá kom einnig danski rithöfundurinn Hans
Hansen. Gabriela Shalev, prófessor í lögfræði við há-
skólann í Jerúsalem, kom til íslands í október. í sama
mánuði kom danski iðnhönnuðurinn Jakob Jensen. Nýr
yfirmaður Hjálpræðishersins, kommandör Martin Hög-
berg, kom til íslands í október. — í nóvember kom prófess-
or Nusimovici frá háskólanum í Rennes til íslands og flutti
fyrirlestur um Pascal og raunvísindi 20. aldar. f sama
mánuði kom Jógvan við Keldu, bæjarstjóri í Klakksvík, og
hélt fyrirlestur um rithöfundana Robert Joensen og J.
Símun Hansen. í nóvember kom Manuela Garcia Villas
lögfræðingur og varaforseti mannréttindanefndar E1 Salva-
dor til íslands. Hún sagði frá ástandinu í heimalandi sínu og
í ávarpaði m. a. flokksþing Alþýðuflokksins. — Lennart
Brodström utanríkisráðherra Svía kom til íslands í kynnis-
för í desember.
Hervarnir
í marz fékk Varnarmáladeild til umráða 13 hektara lands
1 Helguvík á Reykjanesi fyrir olíustöð. Agreiningur var um
mál þetta í ríkisstjórn, og var Alþýðubandalagið á móti því,
að olíustöð þessi yrði reist. Utanríkisráðherra lét samt hefja
rannsóknir á Helguvíkursvæðinu. í september var hafnað
hugmyndum um að hefja framkvæmdir við nýja flugstöð á
Keflavíkurflugvelli, er reist yrði að nokkru fyrir bandarískt
fé. Þetta var gert í samræmi við neitunarvald Alþýðubanda-
•ags í stjórnarsáttmála í þessu máli. Engu að síður sam-
Þykktu Bandaríkjamenn að geyma um sinn þá fjármuni,
sem samþykkt hafði verið að veita til flugstöðvarinnar.
íbúar íslands
1. desember 1982 var íbúatala íslands 235.453 (1. des.
1981: 231.958). Af þeim voru karlmenn 118.641 (116.879)
(109)