Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 118
Borðtennis. íslandsmót var haldið í Reykjavík í apríl.
Þátttakendur voru um 100 frá 9 félögum. Stefán Konráðs-
son (Víkingi) varð íslandsmeistari í karlaflokki, en Ásta
Urbancic (Erninum) í kvennaflokki. íslenzk sveit tók þátt í
Evrópukeppni landsliða, sem haldin var í febrúar á Jersey.
Sveitin tapaði öllum leikjum sínum. Gunnar Jóhannsson
var á árinu kjörinn formaður borðtennissambandsins.
Bridge. Sveit Sævars Þorbjörnssonar sigraði í sveita-
keppni, en í tvímenningskeppni sigruðu Jón Baldursson og
Valur Sigurðsson á íslandsmótunum, sem haldin voru í
apríl. í febrúar héldu Norðmenn upp á 50 ára afmæli
bridgesambands síns og buðu fjórum pörum frá íslandi til
afmælismóts. Þeim gekk heldur illa. í sama mánuði var
haldið fyrsta íslandsmót fyrir spilara yngri en 25 ára. í marz
héldu Bridgefélag Reykjavíkur og Flugleiðir mikið mót í
Reykjavík með þátttöku erlendra bridgemanna. Norður-
landamót var haldið í Helsinki í júní. íslenzka sveitin varð í
3. sæti, og er það bezti árangur íslands síðan 1966. Á í
Evrópumóti yngri spilara, sem haldið var á Ítalíu í júlí,
urðu íslendingar í 16. sæti af 18. íslendingar tóku þátt í
heimsmeistarakeppni í tvímenningi og sveitakeppni, sem
haldin var í Frakklandi í október. Árangur varð ekki góður.
— í lok október var haldið ársþing Bridgesambands ís-
lands. Kristófer Magnússon var endurkjörinn formaður.
Fimleikar. íslandsmót fór fram í marz. Davíð Ingason
(Ármanni) sigraði í karlaflokki og Kristín Gísladóttir
(Gerplu) í kvennaflokki. Unglingameistaramót íslands fór
fram í Reykjavík í febrúar. Kristín Gísladóttir (Gerplu),
Guðjón Gíslason (Ármanni) og Þór Thorarensen (Ár-
manni) sigruðu í flestum greinum. Norðurlandamót í fim-
leikum var haldið í Reykjavík í apríl. Svíar urðu sigursæl-
astir. Flokkar úr Gerplu í Kópavogi og Fylki í Reykjavík
tóku þátt í alþjóðlegu fimleikamóti í Zúrich í Sviss í júlí. j
Frjálsíþróttir. Sveit ÍR varð í 19. sæti í Evrópukeppni í
víðavangshlaupi í Clusone á Ítalíu um mánaðamótin janú-
ar-febrúar. Fimm íslenzkir frjálsíþróttamenn kepptu á opna
sænska meistaramótinu í Gautaborg í febrúar. Lilja Guð-
(116)