Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 119
mundsdóttir varð þriðja í 1500 m hlaupi. Um svipað leyti
kepptu tveir íslendingar á norska opna meistaramótinu í
Drammen. Sigurður T. Sigurðsson (KR) sigraði í stangar-
stökki, og Jón Oddsson (KR) varð annar í langstökki. Ung-
lingameistaramót íslands innanhúss fór fram í Reykjavík og
Keflavík í febrúar. Bryndís Hólm (ÍR) vann bezta afrekið.
Meistaramót fslands í frjálsíþróttum innanhúss fór fram í
Reykjavík í febrúar. Um 90 frjálsíþróttamenn tóku þátt í
mótinu, flestir af landsbyggðinni. Ágúst Ásgeirsson (fR)
sigraði í karlaflokki í Víðavangshlaupi íslands, sem haldið
var í Garðabæ í apríl. Ragnheiður Ólafsdóttir (FH) sigraði í
kvennaflokki. Gunnar Páll Jóakimsson (ÍR) sigraði í Víða-
vangshlaupi ÍR á sumardaginn fyrsta. í júlí sigraði Sigurður
P. Sigmundsson (FH) í 10 km hlaupi á brezka háskólameist-
aramótinu. Walesbúar sigruðu íslendinga (108-97) í lands-
keppni f Reykjavík 17.-18. júlí. Á sama tíma fóru fram
Reykjavíkurleikar, og háð var Norðurlandakeppni kvenna.
Norsku stúlkurnar sigruðu í síðasttöldu keppninni, en hinar
tslenzku urðu í 4. og síðasta sæti. Meistaramót fslands var
haldið á Selfossi 24.-25. júlí. Kalottkeppnin fór fram í
Norður-Svíþjóð um mánaðamótin júlí-ágúst. íslendingar
urðu í 2. sæti, en Finnar sigruðu. fslenzku stúlkurnar sigr-
uðu í kvennakeppninni. í bikarkeppni FRÍ sigraði ÍR ell-
efta árið í röð. Fjórir íslendingar tóku þátt í Evrópumeist-
aramótinu í Aþenu í september. Beztum árangri náði Odd-
ur Sigurðsson (KR), sem komst í milliriðil í 400 m hlaupi og
setti nýtt íslandsmet. Gamlárshlaup ÍR var hlaupið síðasta
dag ársins. Sigurvegari var Sigurður P. Sigmundsson. —
Nokkur ný íslandsmet voru sett á árinu. Meðal þeirra eru
þessi: Oddur Sigurðsson (KR) í 400 m hlaupi: 46.6 sek.,
Jón Diðriksson (UMSB) í 800 m hlaupi: 1.49.2 mín. og í
utílu hlaupi: 3.57.63 mín., Sigurður T. Sigurðsson (KR) í
stangarstökki innanhúss: 5.10 m og Bryndís Hólm (ÍR) í
langstökki innanhúss: 5.84 m.
Glíma. Helgi Bjarnason (KR) sigraði í skjaldarglímu
Ármanns, sem þreytt var í febrúar. í lok febrúar var bikar-
glíma Glímusambands íslands, og sigraði Eyþór Pétursson
(117)