Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 123
Þeir unnu Keflvíkinga í úrslitaleik (2—1). í bikarkeppni
kvenna sigraði Breiðablik Val eftir vítaspyrnukeppni. —
Fyrsti landsleikur karla á árinu var í Kuwait í marz. Jafn-
tefli varð (0—0). f byrjun júní léku fslendingar og Englend-
ingar landsleik í Reykjavík. Þetta var fyrsti landsleikur
íslendinga við atvinnumannalið Englendinga. Jafntefli varð
1 — 1 (Arnór Guðjohnsen). Nokkrum dögum síðar léku
Möltubúar og íslendingar fyrsta leikinn í Evrópukeppni
landsliða. Leikurinn fór fram í Messína á Sikiley, og sigr-
uðu Möltubúar 2—1 (Marteinn Geirsson). Finnar unnu ís-
lendinga 3—2 (Marteinn Geirsson, Atli Eðvaldsson) í
landsleik, sem háður var í Helsinki í júlí. íslendingar unnu
tvo landsleiki við Færeyinga í ágúst. Hinn fyrri var í Þórs-
höfn 4—1 (Sigurður Grétarsson 2, Heimir Karlsson, Er-
lingur Kristjánsson). Hinn síðari var háður í Götu 4—0
(Sigurður 2, Erlingur 2). í byrjun september var annar
leikur íslendinga í Evrópukeppninni. íslendingar og Hol-
lendingar gerðu jafntefli í Reykjavík 1 — 1 (Atli Eðvalds-
son). Viku af september sigruðu Austur-Þjóðverjar ís-
lendinga í landsleik í Reykjavík 1—0. í október léku íslend-
ingar tvo leiki í Evrópukeppninni og töpuðu báðum, 0—2
fyrir frum í Dýflinni og 0—1 fyrir Spánverjum í Malaga. —
Kvennalandsliðið gerði jafntefli við Norðmenn í Tpnsberg
2—2 (Rósa Valdimarsdóttir, Ásta B. Gunnlaugsdóttir).
Leikurinn fór fram í ágúst og var liður í Evrópukeppni
kvennalandsliða. í september léku íslendingar öðru sinni í
þessari keppni og töpuðu nú fyrir Svíum í Kópavogi 0—6. —
Landslið leikmanna yngri en 21 árs lék við Dani í Reykja-
vík í júní. Jafntefli varð 1 — 1. í Evrópukeppni þessara liða
gerðu íslendingar og Hollendingar jafntefli í Keflavík í lok
ágúst 1 — 1. Loks léku íslendingar við Spánverja í Badajoz í
október, og sigruðu heimamenn 1—0. — Unglingalandslið
íslands og írlands léku tvo leiki í Evrópukeppni þessa ald-
arsflokks. Jafntefli varð í Reykjavík 1 —1, en írar sigruðu í
Lýflinni 1—0. — Drengjalandslið íslands varð í 4. sæti á
Norðurlandamóti í Finnlandi í lok júlí. — Víkingur, ÍBV og
Fram tóku þátt í Evrópukeppni félagsliða og voru öll slegin
s (121)
L