Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 144
(22), 43 frá Kvennaskólanum í Reykjavík, 13 frá Garða-
skóla og 7 frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki.
Raforkumál
Hinn 21. janúar var 2. vélasamstæða Hrauneyjarfoss-
virkjunar sett í gang. Hún framleiðir 70 megavött. Afram
var haldið borunum við Kröflu og lokið við 2150 m holu í
júní. Þá hófst svokölluð stefnuborun og borað ýmist á ská
eða beint niður. Mikið var unnið við Suðurlínu frá Hólum í
Nesjum að Sigöldu. Gerðar voru undirstöður og reistir
staurar á 50 km kafla. 11. ágúst var undirritaður samningur
um, að Landsvirkjun taki við öllum byggðalínum. Jafn-
framt felst í samningnum ákvörðun um það, að Landsvirkj-
un reisi og reki væntanlegar virkjanir við Blöndu og í Fljóts-
dal. Landsvirkjun mun frá áramótum 1982—83 selja raf-
orku á sama verði í öllum landshlutum. Vindmylla var sett
upp í Grímsey. Hún getur hitað upp tvö hús. 1. október var
tekin í notkun ný raflína frá Hrauneyjarfossi að Brennimel í
Hvalfirði. Þessi lína er 150 km að lengd og hvílir á 470 stál-
staurum. Um sumarið var unnið að undirbúningi við
Blönduvirkjun. Boruð var tilraunahola og vegur lagður inn
á Auðkúluheiði. 1. desember var 3. vélasamstæða Hraun-
eyjarfossvirkjunar sett í gang. Hún framleiðir 70 megavött
eins og hinar fyrri. Um áramótin nam orkuframleiðsla í
Kröflu um 30 megavöttum og hafði aldrei verið meiri. Alls
voru boraðar þrjár holur á árinu. Reynt var að jafna
orkukostnað með því að lækka verð rafmagns til nokkurra
rafveitna.
Samgöngur og ferðalög
72.600 útlendingar komu til íslands á árinu (árið áður
72.194). Af þeim voru 20.824 Bandaríkjamenn (17.904),
8.595 Vestur-Þjóðverjar (9.160), 7.276 Bretar (7.880),
6.846 Danir (7.839), 5.820 Svíar (6.303), 5.268 Norðmenn
(5.062), 4.429 Frakkar (4.251), 2.878 Svisslendingar
(3.354), 1.707 Hollendingar (1.569), 1.629 Finnar (1.391)
og 1.003 Kanadamenn (891).
(142)