Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 157
1
þar verður aðalbyggingarsvæði Reykjavíkur á næstu árum.
Gert er ráð fyrir brú yfir Grafarvog, og var byrjað á
uppfyllingu að henni. — Áfram var haldið byggingu Þjóð-
arbókhlöðu á Melunum. f júlí var tekið til við stækkun
Bændahallarinnar fyrir Hótel Sögu. Áfram var unnið við
hugvísindahús við Sturlugötu, og gerðar voru endurbætur á
Nýja-Garði. Hús tannlækna- og læknadeildar neðan Land-
spítalans var tekið í notkun að hluta. Vinna hófst við
endurreisn gamla bakarísins við Lækjargötu, og unnið var
áfram að húsi Listasafns íslands við Fríkirkjuveg. Mikið var
unnið við hús Seðlabankans við Arnarhól og sambyggt bíla-
geymsluhús. 15. október var vörugeymsluhús Skipaútgerð-
ar ríkisins hjá Hafnarbúðum tekið í notkun. 18. ágúst var
heimili aldraðra, Droplaugarstaðir, tekið í notkun. Miklar
framkvæmdir voru við Borgarleikhúsið og nýja útvarpshús-
ið. Hús verzlunarinnar var að hluta tekið til notkunar.
Mikið var unnið við B-álmu Borgarspítalans, og voru 5. og 6.
hæð byggingarinnar langt komnar. Unnið var við farfugla-
hús í Laugardal og hafnar framkvæmdir við 3. áfanga
íþróttamiðstöðvar þar. Lokið var frágangi við Áskirkju að
utan. Hús Rafmagnsveitu Reykjavíkur við Suðurlands-
braut var nær fullgert. Tekin var í notkun bygging spari-
sjóðsins Pundsins við Hátún. í febrúar var tekinn í notkun
nýr safnaðarsalur í Seljasókn. Byrjað var á nýrri kirkju í
Fella- og Hólahverfi, og haldið var áfram byggingu Breið-
holtskirkju. Bygging íþróttahúss við Seljaskóla var komin á
lokastig, og sama má segja um félagsmiðstöð við Gerðu-
berg. Byrjað var á byggingu nýrrar mjólkurstöðvar við
Bitruháls og vörugeymslu SÍS við Holtabakka. Sama fyrir-
tæki hóf að byggja hús fyrir timburvinnslu við Krókháls. 14.
ágúst var tekin fyrsta skóflustunga að húsi SÁÁ við Grafar-
vog. Reist var torfhýsi við Árbæjarsafn. Lokið var við þjón-
ustumiðstöð fyrir skíðafólk í Bláfjöllum. — 28. október
voru fjarlægð gömul möstur á Landsímastöðinni. Þau
höfðu lengi sett svip á bæinn. Grænaborg, fyrsta dagheimili
Sumargjafar, var rifin í október. Ný Grænaborg er í smíð-
um á Skólavörðuholti.
(155)