Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 162
lóðum í Túnahverfí, sunnan sjúkrahússins. Um áramót
voru 67 íbúðir í smíðum í bænum. Heilsugæzlustöð er í
byggingu, hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra og íþrótta-
hús. Byrjað var á viðbyggingu við Fjölbrautaskólann. Leik-
skóli var tekinn í notkun í Hlíðahverfi. Unnið var við verzl-
unarhús Kaupfélagsins við Ártorg, veiðarfærahús sjó-
manna, hús Fiskiðjunnar á Eyrinni og iðnaðarhús við Borg-
arflöt. — Nýtt hús Pósts og síma og Búnaðarbankans var
tekið í notkurt í Varmahlíð í september. — Loðdýrahús,
sem eru um 3000 m2 að flatarmáli, eru í smíðum í Skaga-
fjarðarhéraði.
Húnavatnssýslur. Byrjað var á byggingu nýrrar kirkju á
Blönduósi. — Ný sundlaug var tekin í notkun á Hvamms-
tanga 4. september. Þar var áfram unnið við heilsugæzlu-
stöð. — Steyptar voru undirstöður að nýju prestsseturshúsi
á Melstað.
Strandasýsla. Hafin var smíði heilsugæzlustöðvar á
Hólmavík. Þar var áfram unnið við viðbyggingu grunnskól-
ans.
ísafjarðarsýslur. Á Súðavík var unnið að endurreisn
stíflu við Eyrardalsá og lagningu nýrrar aðveituæðar fyrir
vatnsveituna. Þá var nýr leikskóli í byggingu. — Á ísafirði
var lokið við smíði 43 íbúða á árinu. Framkvæmdum lauk
við Hafnarhús, hús Niðursuðuverksmiðjunnar hf. og hótel
og veitingahús við Silfurtorg. Fyrirtækin Niðursuðuverk-
smiðja O. N. Olsen, íshúsfélag ísfirðinga og Hraðfrystihús
Hnífsdals stækkuðu húsnæði sitt. íbúðir aldraðra, Hlíf>
voru formlega afhentar 10. júlí. Áfram var unnið við
íþróttavallarhús á Torfunesi, sjúkrahús og heilsugæzlustöð,
stækkun slökkvistöðvar og hús Menntaskólans. — Á Bol-
ungarvík var íþróttahús gert fokhelt, og verið er að reisa
leikskóla og íbúðir aldraðra. — Á Þingeyri var mikið unnið
við gatnagerð, og er langt komið að leggja slitlag á allat
götur í þorpinu. Fjögur íbúðarhús eru þar í smíðum.
Barðastrandarsýsla. Á Tálknafirði var unnið að hafnar-
framkvæmdum, og félagsheimili er í smíðum. — Á Patreks-
firði var hafin bygging skreiðarþurrkunarhúss. 2. júlí var
(160)