Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1926, Page 25
19
lögum« — — — »Eg finn enga sök hjá honum«---------------
»Á eg að krossfesta konung yðar?« — Og þegar hann
hefir látið það eftir lýðnum, að dæma Jesúm til kross-
festingar, reynir hann að komast hjá sjálfri ábyrgðinni á
því. »Hann tók vatn, þvoði hendur sínar í augsýn mann-
fjöldans og mælti: Sýkn er eg af blóði þessa réttláta
manns.«
En Píltus gat ekki þvegið sig sýknan og hreinan.
Hann hafði leikið sér með sannindi þangað til hann var
ekki lengur fær um að taka ákvarðanir, starfa, lifa frjálst
og alvariega. Hann hafði brugðist sannleikanum og nú
brást honum það, að geta verið heill og sannur, nú þeg-
ar hann einmitt þurfti þess með, að geta breytt í sam-
ræmi við sannleikann og það besta í sjálfum sér á þessu
mikla prófi lífs síns.
Vesalings Pílatus! Hann hafði ekki hugrnynd um, að
hann myndi taka próf á Iíf sitt og manngildi, þar sem
horft yrði á hann um aldir alda. Hann hafði heldur ekki
hugmynd um, að hann var einmitt á þessari stundu að
taka slíkt próf, þar sem kynslóð eftir kynslóð horfði á
hann. — En hvað vitum við um okkar framtíð? Og hvað
vitum við um það, hvenær og hvernig við fáum
próf á líf okkar og manngildi. Best er að vera við öllu
búin, jafnvel því að standa fyrir konungi sannleikans.
Pílatus hafði leikið sér að sannindunum. Jesús hafði
lifað sannleikann. Pegar Jesús talar um sannleika, þá eru
það ekki nýjustu vísindalegar eða heimspekilegar hug-
hugmyndir eða skoðanir um það, hvað sé satt. Yfir slíku
gruflaði hann ekki. Sannleikurinn var honum lög til að
lifa eftir, sannindi, heilindi til að byggja líf sitt á, persónu-
legt, heilt líf lifað í samræmi við það besta í sjálfum
manni og um leið hlýðni við hinn æðsta, guðdómlega