Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1926, Qupperneq 31
éndur skótans búsettir í Suður- og Norður-Þingeyjaf-
sýslum. Leysist S. Þ. U. upp, hefir skólaráðið heimild
til, að veita öðrum félagsskap ungra manna í sýslunnit
er skólann vill styrkja, hlutdeild í stjórn hans. Kjósa
skal hvern skólaráðsmann til 6 ára í senn, og gengur
einn þeirra úr annaðhvort ár, í fyrsta sinn eftir hlutkesti.
11. grein.
Skólaráðið skal bera ábyrgð á fjárhagslegum rekstri
skólans. Skal það tryggja honum fasta tekjustofna og
sjá um, að kostnaður verði aldrei meiri en tekjur. Skóia-
ráðið velur sér formann og ritara. Kemur formaður
fram fyrir hönd þess út á við og kallar saman fundi, en
ritari bókar alt, sem það starfar markverðast, bæði á
fundum og utan funda. Ennfremur ræður skólaráð
féhirði, er hefir fjárreiður skólans á hendi með formanni.
Löglegur er skólaráðsfundur, ef meiri hluti skólaráðs-
manna mætir, enda sé hann löglega boðaður.
12. grein.
Skólinn skal starfa sem sérstakt og sjálfstætt heimili.
Yfirumsjón þess heimilis hefir skólastjóri með aðstoð
húsmóður, er hann ræður með samþykki skólaráðs, og
setja þau heimilisreglur, sem öllum er skylt að hlýða.
Nemendur skólans skulu hafa matarfélag með formlega
samþyktum reglum. Skyldir eru allir nemendur, að vera
í matarfélagi, nema skólastjóri veiti undanþágu. Jafnan
skal a. m. k. einn kennari vera í matarfélaginu.
13. grein.
Skyldir eru allir nemendur, að ræsta herbergi sín sjálfir
og hirða að öllu. Karlar skulu og ræsta öll þau her-
bergi, er nemendur hafa til sameiginlegra nota, nema
borðstofu, eldhús og búr, er konur ræsta. Hefir hús-
móðir skólans umsjón með hirðingu skólahússins, og