Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1926, Blaðsíða 46
4Ó
1. Söfnun eða greining grasa eða annara íslenskra
náttúrugripa.
2. Söfnun orða úr alþýðumáli, málsliátta og talshátta,
alþýðusagna eða alþýðukveðskapar.
3. Að nemandi lesi rækilega fræðibók um eitthvert
alriði og geri skriflega grein fyrir árangri lestursins.
4 Að nemandi vinni eigin höndum einhvern nothæfan
og vel gerðan hlut, er telst til íslenskrar heimilisiðju.
— Þegar söfn skólans hafa náð nokkrum vexti, og
þegar kenslukraftar hans eru orðnir miklir og fjölbreyttir,
er til þess ætlast, að nemendur eigi kost á að vera meir
en einn vetur í eldri deild og geti haft þess full not.
Einnig eiga þeir að geta átt þess kost, að dvelja þar
nokkurn hluta vetrar og haft þá sérstök verkefni til úr-
lausnar. Og tveim höndum ætti hann að taka öllum
þeim, er stunda vilja íslensk fræði innan veggja hans,
hvort sem eru ungir eða gamlir. Á þann hátt gæti
hann öðrutn þræði orðið þjóðlegt fræðiklaustur.
Vel gæti verið um að ræða samvinnu milli skólans og
þeirra, er nám rækja í tómstundunum heima. Þó væri
slíkt auðveldast um gamla nemendur skólans. Skólinn
gæti verið hjálplegur um bækur og önnur hjálpargögn,
kennarar hans gætu hjálpað tii, að fá yfirlit yfir efni það,
sem tekið yrði til úrlausnar. Svo tækju þeir að lokum
úrlausnirnar til athugunar. Hér getur því verið um að
ræða bæði leiðbeiningar og aðhald frá skólans hálfu.
Um 6. grein.
Próf yngri deildarinnar veitir nemendum réttindi til
náms í eldri deild skólans og ætti líka að veita réttindi
til náms í eldri deild annara alþýðuskóla. Sömuleiðis
væri vafalaust rétt, að búnaðarskólarnir gerðu próf upp
úr yngri deild alþýðuskóla að inngönguskilyrði.*) Próf
*) Ef til vill væri þá rétt, að láta námstímann við búnaðar-