Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1926, Qupperneq 74
68
Héraðshátíðin 1915 var einskonar skírnarveisla Sam-
bands þingeyskra ungmennafélaga. Þau samtök voru þá
ný, og hátíðin var fyrst til að gera þau fullkunn. Við,
sem þá gengum undir blaktandi fánum, glímdum og
stukkum, hlupum og syntum, vorum að reyna okkar
eigin mátt og sýna hvers vænta mátti af okkur og okkar
samtökum. Nú erum við að skila af okkur æskustörf-
unum. Hvað höfum við þá afrekað? Það er ekki mikið.
Enn leikur það á tveim tungum, hvort okkur hafa enst
árin til að verða að mönnum. Það hefir orðið okkur
þyngra en við hugðum. Því eru og önnur afrek minni.
Við höfum bygt einn skóla. Það höfum við gert af
því, að okkur langaði til að gera ykkur, sem enn eruð
ung, léttara að verða að mönnum. Reynslan ein sýnir,
hvort við höfum byrjað á því, sem mest reið á og mest-
an árangur ber.
í 10 ár hefir S. Þ. U., sem þessa hátíð heldur, barist
fyrir því, að reistur yrði skóli fyrir þingeyska alþýðu. í
dag skilar það skólanum úr höndum sér sem sjálfseignar-
stofnun, sem héraðinu er afhent.
Og í tilefni af því vil jeg segja ykkur ögn um skól-
ann. Nú er búið að kosfa til þess að reisa honum gott
hús rúmlega 90 þús. kr. Framlög Þingeyinga eru rúm-
lega 30 þús. kr. Ríkisstyrkur er 35 þús. kr. Skuldin
25 þús. kr. er frá 1. þ. m. fast lán í Söfnunarsjóði ís-
lands með ábyrgð sýslunnar og bakábyrgð 20 skólavina.
Eign skólans hefir verið virt af óvilhöllum mönnum,
sem yfirvöldin hafa útnefnt til þess, á 102 þús. kr. Alla
þá, sem ekki hafa séð skólann enn, býð eg þangað vel-
komna eftir kl. 7 í kvöld. Þá skal eg vera heima til að
sýna hann.
Hingað til hefir stjórn S. Þ. U. sótt skólamálið til sig-
urs og séð um framkvæmdir og stjórn að mestu. í dag
er stjórn skólans afhent 3ja manna ráði. Einn þeirra