Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1926, Qupperneq 111
105
Auk þeirra hátíöahalda, er skýrsla stjórnar umf. getur, mess-
aði sr. Hermann Hjartarsson á Skútustöðum tvisvar í skóianum
og sr. Sv. Vikingur Grimsson einu sinni. Pá var fullveldisdag-
urinn 1. des. haldinn hátiðlegur og hélt Sigurjón Friðjónsson er-
indi við það tækifæri. Annars voru einhverjar skemtanir um
hverja helgi. í skarnmdeginu voru oft sagðar rökkursögur. Hverjum
nenianda, sem afmæli átti á vetrinum, var haldinn afmælisfagn-
aður, mælt fyrir minni afmælisbarnsins og sunginn árnaðarsöngur.
Á hverjum degi voru leikir og iþróttir úti.
Einskis tóbaks var neytt í skólanum og þó ekki tóbaksbind-
indi né tóbaksbann.
Umferðarveiki, „rauðir hundar“, kom upp í skólanum skömmu
eftir að hann tók til starfa. Fékk meir en hehningur skólafólks-
ins veikina, en á flestuin var hún fremur væg. Vegna afleiðinga
hennar urðu tveir nemendur, er heilsuveilir voru fyrir, Kári
Tryggvason og Helga Pórarinsdóttir, að hætta námi um veturinn.
Einn nemandi, Ingólfur Sigurgeirsson, fékk lungnabólgu og brjóst-
himnubólgu Iaust eftir nýjár. Varð að gera á honum holskurð
til að lileypa út greftri úr brjóstholinu og Iá hann í skólanum
(í íbúð skólastjóra) nær því til skólaloka, en fékk að lokuin
góðan bata. Haraldur Jónsson, settur héraðslæknir á Breiðumýri
var ráðinn heimilislæknir skólans og hafði eftirtit með heilsufarinu
allan veturinn.
Húsa'kynni skólans eru ágæt að því leyti, að stofur eru bjart-
ar og upphitunin ágæt, svo að litt verður vart veðrabrigða úti.
En mikill skortur er á nauðsynlegum húsgögnum, þótt nokkuð
væri úr því bætt sl. vetur. Líka var full þröngt fyrir þann mann-
fjölda er i húsinu var. Pó komu þau óþægindi harðast niður á
kennurum skólans, sem þrengdu að sér sem mest máttu. Samt var
nokkrum, er sóttu um skólann, visað frá. Nú í júni-lok 1926 hafa
mér borist 57 umsóknir um skólann auk þeirra er voru í yngri
deild sl. vetur og koma aftur (líklega 23) og verður að visa alt
að- 3 0 frá.
Söfn skólans og kensluáhöld,
Skólinn er ennþá fátækur af kensluáhöldum. Keilsluáhöld
þau er unglingaskólinn á Breiðumýri hafði átt jlandabréf] og
grasasafn með flestum isl. háplöntum gaf Arnór Sigurjónsson