Jólagjöfin - 24.12.1917, Síða 31

Jólagjöfin - 24.12.1917, Síða 31
 Járnbrautarferd. Eftir Max Fip. — Þýtt af S-H. NGUR verzlunarmaöur, Páll Grönning að nafni, hag- ræddi sér makindalega í einu horni járnbrautarklef- ans og dró upp úr vasa sínum nokkur dagblöð. Hann var í ágætu skapi og hlakkaði mjög til ])essa ferðalags, því ferðinni var heitið til höfuðstaðarins, þar sem Páll átti vísa góða atvinnu. I höfuðstaðnum bjó einnig stúlk- an sem hann var mjög hrifinn af, ungfrú Vita Rolf, sem hann hafði kynst i sumarleyfinu. Og það var einmitt hjá föðurbróður hennar, sem hann átti atvinnuna vísa. Páll gleymdi alveg blaðinu sem hann liélt fyrir framan sig, starði út í bláinn og sökti sér niður í sæludi'auma. Hann hafði enga löngun til að lesa, heldur sitja i ró og næði og hugsa um hana — — og hversu lífið væri yndislegt. í því að lestin var að fara af stað, var hurðin opnuð og inn kom ungur maður. Páll, sem einniitt hafði glatt sig yfir þvi að hann mundi fá að vera einsamall í járnbrautarklefanum, komst nú í ilt skap og virti komumann fyrir sér með óblíðu augnaráði. Það var langur og grannur náungi með bjart hár og freknóttur i andliti, augnabrýr hans og augnahár voru svo ljós að þau hurfu algerlega. Klæðaburður hans var svo til- gerðarlegur að Páll gat varla stilt sig um að hlæja. Komumaður heilsaði Páli eins og gömlum kunniugja og kvaðst heita Jónas Emilius Jónasson og vera verzlunarstjóri. Hann sagðist hafa verið í sumarleyfi, en sér hefði dauðleiðst og ekkert óskað sér frekar en að komast aftur til Kaup- mannahafnar. Hann saknaði mest frænku sinnar, sem hann

x

Jólagjöfin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.