Jólagjöfin - 24.12.1917, Side 43

Jólagjöfin - 24.12.1917, Side 43
JÓLAGJÖI’IN 41 þetta traust sé bygt á óhagganlegum grundvelli, — geti stað- ist. Áður en eg fer lengra vil eg þess vegna spyrja yður, hvort þessi tilgáta mín sé rétt“. „Því get eg vel svarað játandi, án þess að segja með því nokkuð um aðalástæðuna til þrss að eg mælist til þessa af yður“, svaraði Gerner. „Eg ræð af þessu, að þér óskið þá aðeins að fá vitn- eskju um, hvort ekki mundu vera einhver atvik í lífi mínu, sem þannig væru löguð, að veikt gætu traust yðar til mín, — ef þér vissuð um þau. Er það ekki svo?“ „Oldungis rétt“, svaraði Gerner. Axel Krúse þagði stundarkorn og leit til konu sinnar — horfði inn í stóru, skæru augun hennar, sem hann einu sinni hafði lesið í örlög sjálfs sín, — augun sem voru honurn sem opin bók. Nú las liann þetta í þeim: Axel segðu það alt! — Og hann hélt áfram. „Eg ælla þá að byrja á því, sem þungbærast er og ógurlegast, því, sem eg hafði hugsað mér að eg mundi aldrei segja neinum, nema einni manneskju. Eg ætla að segja það eins og það er. Já, í lífi rnínu er atvik, sem veikt getur traust yðar á mér, — já, sem gæti algerlega eyðilagt það“. Gerner laut áfram og starði á verzlunarstjóra sinn, og svipur hans bar þess ótvíræðan vott, að hann var ekki all- litið undrandi. En hann sagði ekkert. Axel drap höfði. Hann dró þungt andann — eins og hann styndi við, og þessar stunur voru það eina, sem rauf kveljandi þögnina i stofunni. Loks stundi hann upp þessum orðum: „Já, — eg segi það eins og það er — eg — hefi verið — — glæpamaður!“ Kaupmaðurinn gamli kiptist við. Skjöldur hans var svo ílekklaus sem frekast gat verið. Hann stökk á fætur, stað- næmdist fyrir framan Axel, — og allir tilburðir hans og svipurinn bar ótvíræðan vott hinnar mestu undrunar. Upp- glent augun, þunnu, hlóðlausu varirnar, og hrukkótta ennið — alt virtist hrópa: „Hvað eruð þér að segja!“

x

Jólagjöfin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.