Jólagjöfin - 24.12.1917, Page 46

Jólagjöfin - 24.12.1917, Page 46
44 JÓLAGJÖFIIÍ krónur og hvar átti eg að fá það sem á vantaði? Eg hafði verið skamman tíma í New-York og þekti engan sem eg gœti snúið mér til. Hver mundi vilja Iána ókunnum ungling tvö þúsund krónur. Félagar mínir í bankanum útveguðu mér átta hundruð krónur. Og í neyð minni reyndi eg alt sem eg gat, — sneri mér til manna, sem eg mundi annars hafa skammast min fyrir að biðja um lán. Og mér var neitað á hverjum staðn- um á fætur öðrum. Loks rakst eg á Ianda einn, sem var fús á að lána mér fé það sem upp á vantaði. Hann hafði það þó ekki handbært, en kvaðst geta haft það til eftir 3—4 daga. En eg gat ekki beðið. „Mannorð föður míns i veði!“ — Þessi orð hljomuðu sífelt fyrir eyrum mér. Sársaukinn og óttinn gerðu mig sturlaðan, svo að eg vissi varla hvað eg gerði. Eg reikaði um göturnar sem ölvaður maður — og braut heilann í sífellu. En hugsanirnar fóru sífelt sömu hring- ferðina. Þær komu altaf aftur að þessu sama: elsku faðir minn gjaldþrota og vanvirtur. Mér varð reikað inn í bankann, inn á skrifstofu mina — til þess eins að vera í næði ofurlitla stund“. Axel þagnaði og leit framan i konu sína — það var honum, sem þyrstum manni svalandi lind. Svo hélt hann áfram: „Eg skal segja yður, að til er djöfull. Það sannreyndi eg þá. Og eg var vopnlaus, því að eg þekti ekki guð. Það sem í mér var gott — alt það göfugasta og bezta i mér — gat ekki verndað mig á þeirri ógurlegu stund. Alt í einu var sem ör frá víti væri skotið í hjarta mjer, — í ungri og hreinni sál minni vaknaði hugsun, ný og óþekt áður, svo Ijót að eg nötraði allur við. Og þó svo djöfullega freistandi að eg gat ekki varist henni. Þarna — í skápnum eru peningarnir —sem frelsað geta föður þinn frá vanvirðunni. Taktu þá, — að láni — aðeins í 3—4 daga — þá kemst alt i samt lag aftur. Eg sendi peningana.

x

Jólagjöfin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.