Freyr - 15.02.1952, Síða 9
FREYR
55
jafn vel niður hvort sem klúturinn er 10,
18, 38 eða 50 stiga heitur og hann, ásamt
Monroe, hefir einnig sannað, að kalt og
heitt vatn er jafn gott og hvort tveggja
betra en að strjúka með þurrum klút, enda
hafa sænskar rannsóknir sýnt hið sama.
Klúturinn skal vera þurrundinn og þá er
hreinlætiskröfunum einnig fylgt í fyllsta
mæli. Hjá N. I. R. D. fundu menn heldur
eigi mismun eftir því hvort klúturinn var
undinn upp úr köldu eða heitu, ef alltaf
var haft sama hitastig.
Þá hafa menn einnig rannsakað tíma til
júgurþvotta fyrir mjaltir og athugað áhrif
þess að strjúka ekki spena þeirra kúa, sem
annars voru þvegnar mínútu fyrir mjaltir,
eða strjúka spenana og láta svo líða 3 eða
6 mínútur unz mjaltir hófust. Það reyndist
tímatöf að strjúka ekki spenana, því að
kýrnar seldu þá ekkert fyrstu mínútuna
sem mjaltað var, en eðlilega eftir það.
Eftir þriggja mínútna bið seldu þær eðli-
lega en þegar biðin var 6 mínútur seldu
þar hægt, og bæði mjólk og fita var minni
en annars.
Við sænsku rannsóknirnar kom í ljós,
að þegar 15 mínútur liðu frá þvotti til
mjalta, stóðu mjaltirnar þriðjungi len'gur,
hreyturnar urðu tvöfalt meiri, en saman-
lagt mjólkurmagn mun minna heldur en
þegar mjaltað var strax eftir þvott. Al-
mennt er óhætt að ráða fólki til að láta
líða eina mínútu frá því að júgrið er
þurrkað unz mjaltir byrja, ef til vill að-
eins hálfa mínútu þegar um nýbærur er
að ræða, en allt að tveim mínútum þegar
kýrnar eru í lágri nyt.
Er hœgt að breyta mjaltahraðanum?
Hjá N.I.R.D. hafa verið skráðar mjólkur-
straumalínur hjá öllum kúnum árum sam-
an og við samanburð þeirra hafa menn
séð mismuninn á hinum einstöku kúm, en
hann er allmikill, og að öðru leyti hefir
verið staðfest, að straumlínurnar eru eins
frá ári til árs hjá hverri kú. Þó hefir komið
í Ijós, að því eldri sem kýrin verður, þeim
mun meiri verða hreyturnar Þá hefir það
og komið í ljós, og verið sannað, það, sem
áður hafði verið staðfest í Svíþjóð og Nýja-
Sjálandi, að eðli til mjólkurmyndunar, og
straumlínugerðin, er erfðum háð. Á
N.I.R.D. eru t. d. 4 kýr, sem mjög seint
selja, af sömu ætt; er ein þeirra móðir,
tvær dætur hennar og sú fjórða er dóttur-
dóttir. Þetta fyrirbrigði er raunar víðar
Spenarnir skulu þurrkaðir og nuddaðir rétt áður en
spenahylkin eru sett á þá, þá kemur mjólkurstraum-
urinn strax.
þekkt og sjálfsagt er að taka tillit til þessa
í kynbótastarfinu og velja til undaneldis
þær skepnur, sem auðvelt er að mjalta.
Fyrrum var það venjan, þegar allir hand-
mjöltuðu, að naut var ekki keypt fyrr en
kaupandinn hafði prófað að mjalta móður
þess. Nú eru mjaltavélar komnar víða og
samtímis hefir ýmsum gleymst að hug-
leiða þá kosti, er fylgja því, að auðvelt sé
að mjalta kýrnar, en það segir sig sjálft,
að betra er að eiga kýr, sem aðeins tekur
3—4 mínútur að mjalta heldur en hinar,
sem vélin þarf að hanga á 1 8—10 mínút-
ur til þess að ná nytinni. Tillögur hafa ver-
ið gerðar um að skrá í ættbækur mjalta-
línur af þrem morgunmjöltum í fimmtu
viku eftir burð og mundi það verðmæt
upplýsing um eðli kýrinnar til mjalta.