Freyr - 15.02.1952, Blaðsíða 21
FREYR
67
ÞÓRHALLUR HALLDÓRSSON
ræair urn e/nið:
Jöfnuð og vítamínöætt mjólk
því hærra sem hitastigið er, því þynnra
verður rjómaiagið. Erfiðara er einnig að
blanda rjómalagi, sem myndast hefir ofan
á mjólk, saman við hana aftur, sé hún
gerilsneydd, en ef hún væri ógerilsneydd.
Fitumagn mjólkur er, svo sem kunnugt er,
að jafnaði milli 3,5—4,0%. Þegar mjólk
hefir staðið nokkrar klukkustundir, byrjar
rjómi að setjast ofan á hana. Þetta stafar
af því, að mjólkurfitan er samsett af ó-
teljandi smá-fituögnum að stærð 6—10
micronur (1 micron = Viooo mm), og rek-
ast þær hver á aðra, sameinast og mynda
stærri agnir, sem að lokum verða það stór-
ar að þær leita til yfirborðsins vegna þess
hve eðlisþyngd þeirra er lítil, og mynda þar
rjómalag. Þetta rjómalag er mjög mismun-
andi þykkt, eftir því hvers konar meðferð
mjólkin fær, (langir flutningar, hálf-full
ílát, gerilsneyðing o. s. frv.) og er það ekki
alltaf í réttu hlutfalli við fitumagn mjólk-
urinnar. Sé mjólkin t. d. gerilsneydd, hefir
hitastig það, sem hún er gerilsneydd við,
áhrif á hve mikill rjómi sezt ofan á hana;
Jöfnun hefir sú aðferð verið kölluð, sem
kemur í veg fyrir að rjómi setjist ofan á
mjólk. Það mun hafa verið um árið 1800
að fyrsta jöfnunarvélin var smíðuð í Frakk-
landi, en það var ekki fyrr en eftir 1927 að
jöfnuð mjólk ruddi sér til rúms á markað-
inum í Bandaríkjunum og Kanada. Nú er
mjólkin jöfnuð að miklu leyti í þessum
löndum og einnig í Englandi, og í Stokk-
hólmi hefir mjólkursamsalan þar jafnað
hluta af mjólkinni undanfarin ár.
Mjólk telzt jöfnuð, þegar búið er að
sundra fituögnunum að svo miklu leyti að
ekki sé, eftir 48 klst. geymslu, meiri en
10% munur á fitumagni efsta og neðsta
hluta mjólkurinnar í ílátinu.
Algengasta aðferðin við jöfnun er í
stuttu máli sú, að mjólk er dælt við mjög
háan þrýsting (140—175 kg. á cm2) í gegn
öðru jöfnu að ráða niðurlögum bólgunnar.
Fyrst er júgrið mjólkað mjög vel. Spen-
inn eða spenarnir, sem dæla skal í, þvegnir
og sótthreinsaðir vandlega. Síðan er lyfj-
um dælt upp gegn um spenagatið. Endur-
taka þarf dælingu þessa, vanalega 3—5
sinnum. Ef um ákafa bólgu er að ræða,
þarf að dæla í spenann á 12 tíma fresti, en
ef um langvinna bólgu er að ræða, mega
líða einn til tveir sólarhringar milli dæl-
inga.
Sé um smit að ræða, þar sem hin nýrri
júgurbólgulyf hafa engin áhrif, verður enn
að leita til hinna eldri læknisaðgerða,
mjólka kúna á nokkurra klukkustunda
fresti, baða júgrið og hafa við það heita
bakstra eða bera á það júgurbólguáburð,
jafnframt því sem gefin eru hitastillandi
og lystörfandi lyf.
Þó hin nýrri júgurbólgulyf gefi ágæta
raun í flestum tilfellum, þar sem þau eiga
við, lækna þau að sjálfsögðu ekki gömul
bris og ber, sem myndazt hafa í iúgrinu
vegna langvinnrar eða eldri sýkingar.