Freyr - 15.02.1952, Blaðsíða 36
82
FREÝR
Þess skal getið sem gert er.
Einn ev sá kaupandi búnaðarblaðsins Ereys, sern á
hverju ári sýnir í verki hug sinn til þessa málgagns
bændanna á þann hátt að greiða hann með marg-
földu áskriftargjaldi. Tvö síðustu árin hefir hann
greitt með heilum 500 króna seðli hvort árið. Nafns
síns vill hann ekki láta getið, en FRE'YR sendir hon-
um hérmeð beztu þakkir.
Búnaðarfélögin józku
birta, um hver áramót, lista yfir þau býli, sem sam-
kvæmt ályktun ráðunautanna og stjórna búnaðarfélag-
anna eru talin til fyrirmyndar í því er snertir vel gerð-
ar og hentugar byggingar. Er þess getið í yfirlitinu
úr hvaða efni byggt sé, hve stórar byggingarnar eru og
er þá tilgreint hve mikil áhöfn er á hverju býli, og
svo annað er máli þykir skipta, svo sem hvar býlin
eru og hverjir séu ábúendur. Er þetta gert í þeim til-
gangi að þeir, sem hyggja að byggja, geti á býlum
þessum leitað fyrirmynda. Er það fráleitt-, að eitthvað
svipað væri gert hér? Varla. Þess eru alltof mörg dæmi,
að óhentugt fyrirkomulag eða öfugar aðferðir hafa ver-
ið viðliafðar af því að fyrirmyndir hafa eigi verið lil
eða ekki verið hirt um að leita þeirra.
Tilraunir með hánytja kýr.
A Stensbygárd, í Danmörku, hafa tilraunir með há-
nytja kýr verið í gangi um síðastliðin 3 ár, á vegum til-
raunastofnunar ríkisins. I tilraunum þessum hafa tekið
þátt 22 kýr samtals, þar af ein kýr öll árin, 9 kýr í tvö
ár og 12 kýr í eitt ár.
Fyrsta árið var meðalnyt 10 kúa 10.070 kg mjólkur
með 4,64% fitu. Kýrnar vógu 719 kg að meðaltali og
þyngdust um 71 kg á árinu.
Annað árið var meðalnyt 11 kúa 10.710 kg með 4,57%
fitu. Meðalþungi kúnna var þá 719 kg og þyngdaraukinn
um tilraunaskeiðið 34 kg að meðaltali.
Nythæsta kýrin, þessi tvö ár, mjólkaði 11.869 kg með
4,57% fitu.
Árangur þriðja ársins hefir ekki verið birtur enn, en
mun verða tilkynntur um þessar mundir.
Heimsmet í nythœð.
Árið 1938 var felld í U.S.A. svartskjöldótt kýr, að
nafni „Ionia Ormby Queen“. Hún átti sannarlega skilið
drottningarheitið, því að þá átti hún heimsmetið í af-
urðamagni. Hún hafði gefið 120.287 kg mjólkur um
ævina.
Á árinu 1951 var meti hennar náð annars staðar. Var
það ensk kýr, svartskjöldótt, sem nú hefir farið fram úr
drottningunni. Heitir sú skepna: „Manningford Faith
Jan Graceful". Hún eignaðist fyrsta kálf sinn hinn 4.
nóvember 1940 en tíunda kálfinn 16. apríl 1951. Um
miðjan ágúst 1951 var lífsnyt hennar 120.299 kg mjólkur
og var hún þá með 12 lítrum meira en heimsmet drottn-
ingarinnar. Síðan hefir hún verið nytjuð og tíminn mun
leiða í ljós hve miklu hún bætir við. Met hennar verður
sennilega ekki slegið strax.
Norðmenn
hafa höggvið upp þýzka orustuskipið „von Tirpitz“,
sem sökkt var við Tromsö á stríðsárunum. Stálið úr flak-
inu er nytasamlegt til margra hluta. Meðal annars hafa
tveir Norðmenn gert úr því risaplóg til þess að bylta með
óbrotnu Iandi. Hann er 2,5 m á lengd, er dreginn at
darttarvél, sem hefir 150 hestöfl. Plógurinn getur plægt
í 60 cm dýpi og losar björg sem eru 4—5 smál. að þyngd,
ef þau verða fyrir honum. Plógar af þessari gerð kosta
um 4.000 norskar krónur.
Júgurbólgu-rannsóknir.
Vestan hafs eru eineggs-tvíkelfingar notaðir til þess að
rannsaka hver áhrif júgurbólga hefir á afurðamagn kúnna.
Gert er ráð fyrir, að rannsóknir þessar verði áframhald-
andi og framkvæmdar á þann hátt, að eineggs-systurnar
séu aldar upp við sömu skilyrði, en þegar byrjað er að
mjalta þær, er önnur systirin smituð með júgurbólgu-
bakteríum en hin er heil og laus við þennan kvilla.
m Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. — Útgáfunefnd: Einar
|* ^_ Olafsson, Pálmi Einarsson, Stángr. Steinþórsson. — Ritstjóri: Gísli Kristjánsson. —
/ Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 1023. Sími 1957.
BÚNAÐARBLAÐ Áskriftarverð FREYS er kr. 50,00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda h.f.