Freyr - 15.02.1952, Page 12
58
FREYR
Tvö og tvö spenagúmmí verka
samtímis. Til vinstri er loftþynn-
ing svo að mjólkin streymir, en
hœgra megin þrýstir loft spena-
gúmmiinu að spenunum, nuddar
þá og spenaopin eru lokuð á með-
an, eða unz loftþynning verður þar
á næstu sekúndu.
ust saman og aðstreymið takmarkaðist, og
þess vegna varð mjaltatíminn jafn langur
og meðalmagn mjólkur á mínútu hið sama.
Með vaxandi loftþynningu uxu hreyturn-
ar (hreytt með vélum).
Loftþrýstimælarnir á vélunum sem hér
eru notaðar, eru því nær allar merktar
með rauðu striki við 15" en bezt væri ef-
laust að stilla þrýstinginn við 12—13” því
að það stig fer bezt með spena kúnna, gef-
ur að vísu ögn hægari mjólkurstraum
fyrstu mínúturnar en á þann hátt næst
meira magn mjólkurinnar úr júgrinu með
vélunum, áður en þörf er á að nudda það.
Reynsla mín er sú, að það hafi yfirleitt
verið til bóta að minnka loftþynninguna í
vélum þeim, sem eru í gangi á starfssvæði
mínu.*
*) Þess skal getið, að hér á landi eru mjaltavélarnar
langflestar Alfa Laval, en Ioftþrýstimælir þeirra er ekki
merktur með " (þumlungum) heldur centimetrum. A
mælunum eru tvö rauð strik, en þau þýða, að vísirinn
á að vera milli þeirra, en þá er sogaflið í lögninni hæfi-
legt. Svarta strikið milli þeirra rauðu táknar meðalsog,
en það er við 33 cm loftþrýsting. Venjulegur loftþrýst-
irtgur andrúmsloftsins er 76 cm há kvikasilfursúla, 1
cm2 í þvermál. Ritstj.
Whittleston segir, að tíðni soga skipti
ekki miklu fyrir mjaltahraðann; hann
hefir borið saman árangurinn af 84,42 og
21 sogi á mínútu; en hlutfallið á milli soga,
sem mj alta, og þrýstings, sem nuddar spen-
ann og heldur blóðrás hans eðlilegri, verð-
ur að vera rétt. Vegna þessa, og til þess að
tryggja öruggan gang sogskiptisins, er
réttast að fylgja þeim forskriftum, sem
gefnar eru fyrir hverja tegund véla, svo
gangtruflanir verði ekki.
Má anka þyngd spenahylkjanna?
Þýðingarmeiri en fjöldi sogslaganna er
þungi spenahylkjanna með tilheyrandi sog-
greini*) og slöngum, eða með öðrum orð-
um það, sem kýrin ber meðan mjaltað er.
Með hæfilegum loftþrýstingi er þungi
þessara hluta 2 y2—sy2 kg. Til þess að hafa
sem næst þennan þunga, verður að gæta
þess, ef skipt er um einhverja hluta þessa
útbúnaðar, að setja aðra með sömu þyngd
í stað þeirra, sem fjarlægðir eru.
Á N.I R.D. hafa verið framkvæmdar til-
raunir viðvíkjandi þessum efnum, og hafa
*) Soggreinir = mjólkur- og sogskiptir eða tengirör,
en þessi heiti hafa verið notuð hér á landi.