Freyr - 15.02.1952, Síða 13
FREYR
59
Örvarnar benda bceði til hcegri og
vinstri, en það þýðir, að sog og
þrýstingur skiþtist á og það á að
gerast 50 sinnum á minútu, þ. e.
25 sog og 25 þrýstibylgjur.
þung spenahylki verið létt með því að setja
bönd yfir hryggi kúnna og þannig verið
hægt að auka eða minnka þunga spena-
hylkjanna um allt að 2 kg. Því meiri þungi
þeim mun oftar féllu spenahylkin af
kúnni, en hreyturnar urðu minni þegar
þung spenahylki voru notuð, af því að þau
soguðust ekki eins langt upp á júgrið.
Verkanir aukins þunga eru þó háðar lög-
un júgurs og spena. Stundum getur gengið
að leggja ofurlítinn aukaþunga á skiptinn,
en þá verður að gæta þess vandlega að
taka vélina nógu snemma af kúnni.
Um þessar mundir er verið að gera til-
raunir í Hollandi með óvenju lágan loft-
þrýsting í sambandi við mikinn þunga og
mjög stuttan mjaltatíma, en árangur þessa
má naumast dæma strax, einkum vegna
þess, að einnig verður að líta á heilbrigði
júgursins.
Vélarnar vinna á þann hátt, að inni í
spenahylkjunum er jafnt sog, sem fjar-
lægir mjólkina, en í bilinu milli sjálfs
hylkisins og spenagúmmísins er til skiptis
sog og venjulegur loftþrýstingur. í hvert
skipti sem venjulegur loftþrýstingur er
þar, þrýstist gúmmíið að spenanum, nudd-
ar hann svo að blóðið í æðum spenans
þrýstist að rótum hans í áttina til hjart-'
ans; er það eðlileg leið, en sogið inni í
gúmmíhylkinu hefir annars gagnstæðar
verkanir.
Þegar aðalmagn mjólkurinnar hefir ver-
ið mjaltað, verður júgrið slappt og hylkin
vilja færast upp á það; á þann hátt getur
myndazt lofttómt hol í spenanum, við það
getur slímhimnan í efsta hluta spenans
sogast niður og skaddast; ennfremur getur
mjólkurrennslið, frá mjólkurhólfi júgurs-
ins til spenans, stöðvast og blóðrásin í
spenanum takmarkast. Það er því mikils-
vert að fyrirbyggja í tæka tíð, að hylkin
sogist langt upp á júgrið.
Mikilsvert er einnig að vélarnar séu í
lagi. Er spenagúmmíið of gamalt, og hefir
tapað fjaðurmagni, takmarkast hreyfingar
þess svo, að nudd við spenann og soghreyf-
ingin hafa ekki þann eðlismismun, sem
vera skal, en það hefir í för með sér hægar
og ófullkomnar mjaltir. Séu slöngurnar ó-
þéttar, tapast loft og getur gert það að
verkum ,að sveiflur spenagúmmísins verða
minni en ella og mjaltirnar lélegar.