Freyr - 15.02.1952, Qupperneq 32
78
FRE YR
Vothey
með eða án sýrunotkunar
Ivar Nordberg heitir sænskur lióndi. sem
Iiei'ir gert grein fyrir reynslu sinni við verk-
un \otheys og notkun ])('-.s, í tímariti, er
heitir Ladugárden (Fjósið).
Hann skrifar þar m. a.:
. .. . í stuttu máli vil ég gera grein fyrir
hvernig það gengur hér á búi mínu í Sörm-
landi. Hið ræktaða land er 1900 dekar.
Mjólkandi kýr eru 40. Af öllum fyrra slætti
er fóðrið verkað í vothey. Er það svo að
segja hreinn smári.
í 15 ár hefi ég notað A.I.V.-sýru. Vothey-
ið hefir aldrei verið misheppnað og efna-
rannsókn af því jafnan sýnt góðar niður-
stöður. Af votheyi hefi ég jafnan notað
20—30 kg á dag handa hámjólka kúm. Ár-
lega hafa kýrnar gefið 185—195 kg smjör-
fitu að meðaltali án þess að notað hafi ver-
ið aðkeypt próteinfóður. Frjósemi kúnna
hefir verið góð, enda þó að reynsla mín af
A.I.V.-fóðri sé ekki allskostar góð. Ástæða
er til að gera nánar grein fyrir þessu, eink-
um af því að ég hefi notað mikið magn vot-
heys. Það sem sérstaklega er að segja er:
1) Á hverju ári hefir fitumagn mjólkur-
innar minnkað að mun um mánuðina
febrúar—apríl.
2) Óeðlilega margar kýr hafa fengið súr-
doða (acetonaemie eða einnig kölluð smá-
býlaveiki). Síðasta árið, sem ég notaði A.I.
V -vothey, fengu allar kýr súrdoða, þær er
báru eftir jól. Allar tilraunir með melassa-
fóðrun, Evomin, Purum, Multafóður og
kobolt-kopar báru neikvæðan árangur.
Sennilega hefðu rófur stoðað sem viðbót
við A.I.V.-votheyið.
3) Skita var algeng og getur hafa átt rót
sína að rekja til þess, að fóðrið var of súrt
eða of kalt stundum.
★
Síðastliðin þrjú ár höfum við verkað vot-
heyið án þess að blanda sýru í það. Það fóð-
ur, sem ekki er forþurrkað, hefir verið tekið
með vagnsláttuvél, saxað og blásið upp í
7,5 m háa votheysturna úr timbri, með 6 m
þvermál.
Fráræsla er úr botni votheysturnanna.
Sett er í hlöðu. með sjálfvirkum fóðurdreif-
ara, aldrei troðið fyrr en votheyshlaðan er
full, ekkert varnarlag að lokum og engin
pressa. í þessi 3 ár hafa mörg sýnishorn
verið tekin til efnagreiningar og hafa þau
undantekningarlaust sýnt ágætan árang-
ur. En svo eru það svör kúnna við notkun
þessa fóðurs:
1) Engin lækkun fitumagns síðla vetrar.
2) Aðeins ein kýr á ári með súrdoða.
3) Lyst kúnna miklu betri en fyrr og
ski a engin. Ekki var próteinkraftfóður
keypt né notað en nytin var að meðaltali
202 kg smjörfita árið 1950 en meðal fitu-
magnið var 4,08%.
Þegar fóðrið er saxað virðist mér að hæð
eða vídd votheyshlöðunnar hafa lítil áhrif
á fóðurgæðin og megi þá frekar velja það
fyrirkomlag er bezt hentar. Mikilvægt er
hins vegar að pressuvökvinn komist sem
skjótast burt, en það skeður trauðla í gegn
um þétt pressað fóður. Vökvinn á auðvelda
burtrás milli borða þegar um er að ræða
votheyshlöður úr tré, en séu hlöður steypt-
ar er nauðsynlegt að sjá fyrir einhvers
konar framræslu við veggina Hér á Sörm-
landi eru þeir nú orðnir margir, sem verka
vothey án þess að nota sýru og árangurinn
er ágætur, en þeir, sem ég þekki, nota yfir-
leitt timburhlöður.