Freyr - 15.02.1952, Page 33
FREYR
79
H úsmæðraþáttur
VINNUSTAÐUR HÚSMÆÐR-
ANNA
Frú Ingrid Askevold, skrifstofustjóri í upplýsinga-
skrifstofu norsku húsmæðrafélaganna, skrifar:
Starf húsmóðurinnar, frá morgni til kvölds, er fjöl-
breytt og að mestu erfiðisverk. Snemma er hún á ferli
og löngum eru vinnuskilyrði hennar þau, að hún
licfir óhagkvæma aðstöðu við vinnuborðið.
Fyrir hana er það auðvitað hvíld að geta sezt við
Og við, en því miður er ekki oft tækifæri til þess og
að minnsta kosti er það víst, að á meðan hún þarf
að vinna við eldhúsborðið eru ekki skilyrði til þess
°g svo er vinnuborðið lang oftast óhentugt.
En það eru ýmiss störf í húsinu, sem hægt er að
framkvæma sitjandi, miklu fleiri en konur gera sér
grein fyrir. En þær hafa vanizt því að vinna störfin
standandi við óhentuga aðstöðu og þreytast oft meira
v'cgna aðstöðunnar en af erfiðinu. En auðvitað verð-
ur vinnuborðið að vera sniðið og byggt þannig, að
hægt sé að vinna við það.
Vinnuborðið á að vera 83 cm á hæð og 60 cm breitt.
Við viljum helzt að það sé staðsett við glugga, svo
að ljós falli beint inn á það og svo að húsmóðirin
geti séð hvað gerist fyrir utan gluggann, þó að hún
sc að vinnu sinni. Undir borðinu þarf að vera geil,
þar sem húsmóðirin hefir aðstöðu til að sitja á vinnu-
stól sínum, og að færa megi stólinn þar inn undir
borðið þegar hann er ekki notaður.
A þessum stað má ætla bökunarplötum rúm og þarna
getur verið útdráttarborð, þannig útbúið að undir það
megi setja fót, eða það er borð með hækkuðum röð-
um, sem tryggja að það, sem á borðið er sett, falli
ekki útaf því. A báða vegu umrædds skarðs er sjálf-
sagt að hafa skápa og skúffur, sem auðvelt er að ná
til og nota. Yfir eldhúsborðinu er sjálfsagt að hafa
veggskáp, sent gcynia skal í notkunarvörur, sem hvers-
• ' > i á við matseld og önnur eldhússtörf.
Þá er gott að hafa í eldhúsinu skáp með loftræstingu,
sem geyma skal í vörur, er slík skilyrði henta eðá
hægt er að þurrka í, ef þess er óskað. Og svo er það
stóllinn. Hann þarf að vera léttur og stillanlegur, svo
að liæðin geti verið breytileg eftir stærð þess, sem
hann notar. Æskilegt er einnig, að hann hafi stillan-
legt bak.
Fótskemill er mjög æskilegur — stundum nauðsyn-
legur og því verður hann að vera með. Fæturnir þurfa
oft hvíld, sem hann getur veitt.
Já, allt þetta kostar mikið, munu ýmsir segja. Ónei,
það gerir það ekki. Munurinn á óhentuga borðinu
og óhentugu vinnuskilyrðunum, saman borið við hið
fullkomna, sem við nú þekkjum, er ósegjanlegur, nema
að því er kostnaðinn snertir. Hver hlutur þarf sinn
stað og hverjum stað ber að geyma þann hlut, sem til
er ætlast. Og þegar öllu er á botninn hvolft er borðið
okkar og sú innrétting, sem tilheyrir, hið ódýrasta. Hið
mikilvægasta í þessu sambandi er, að húsmóðirin geti
setið við sem flest störf og náð til hlutanna og verk-
Er hægt að samrýma í einu
°g sama herbergi, svo vel
verði við unað: eldhús, borð-
stofu og leikherbergi barn-
anna? Ef vel er fyrir öllu
seð, er þetta hægt, segir
byggingafrœðingurinn og
híbýlafrœðingurinn, sem er
höfundur teikningarinnar,
sem myndin sýnir. Til þessa
þarf stórt hornherbergi, með
gluggum á tveim hliðum, svo
að ekki skorti Ijós.