Ægir - 01.11.2002, Page 3
Alfa Laval hálfsoðnu plötuvarmaskiptarnir eru fyrirferðarminnstu, léttustu og afkastamestu kælitækin
á markaðnum. Frábær tæki fyrir gufun og þéttingu í kælikerfum um borð í fiskiskipum og öðrum skipum.
Spara pláss
Alfa Laval hálfsoðnir plötuvarmaskiptar spara pláss og þyngd, minnka magn
kælimiðils og stærð pressu, loka, röra - og þar af leiðandi stofnkostnað.
Sterk hönnun
Hálfsoðni plötuvarmaskiptirinn þolir vel snöggar hitabreytingar og það er enginn
titringur, vegna þess hve stutt er á milli festinga. Á hálfsoðna plötuvarmaskiptinum
eru engar suður undir þrýstiálagi. Vegna snúningshreyfingar í gegnumstreyminu
er lítil hætta á að frjósi á kerfinu. Samt sem áður, ef það gerist, er hönnunin miðuð
við að varmaskiptirinn þoli frostþensluna og verði ekki fyrir skemmdum.
Einstakar plötur
Alfa Laval hálfsoðnu plötuvarmaskiptarnir eru hannaðir til þess að svara þörfum
þeirra sem nota ammóníak og nýja HCFC og HFC kælimiðla bæði í fæðikerfum
og þurrgufunarkerfum. Einstök lögun platnanna hámarkar varmaskipti með því
að auka flæði kælimiðilsins, bæði um alla plötuna og um allan plötustaflann.
• Fyrirferðarlítil hönnun, hálfsoðni
plötuvarmaskiptirinn þarf 20-50% minna pláss
heldur en jafn afkastamikill röravamaskiptir.
• Lítið neyslurúmmál.
• Minni viðhaldskostnaður vegna minna
varmaskiptayfirborðs.
• Smíðaður úr einingum, þess vegna er auðvelt
að breyta síðar og aðlaga nýjum þörfum.
• Mikið rekstraröryggi, langur keyrslutími.
Ávinningur
Sindri • Klettagörðum 12 • 104 Reykjavík • Sími 575 0000 • Fax 575 0010 • www.sindri.is