Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2002, Blaðsíða 5

Ægir - 01.03.2002, Blaðsíða 5
Sjávarútvegsráðherra í ólgusjó umræðunnar Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, er í Ægisviðtalinu og kemur ráðherra víða við, enda mörg stór mál í umræðunni nú um stundir. Rætt er um frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi um breytingu á fiskveiðistjórnunarkerfinu, hvalamálið, stækk- un flotans og margt fleira. Saltfisksetur í Grindavík Í Grindavík er hafin uppbygging svokallaðs Saltfiskseturs, sem að standa m.a. Grindavíkur- bær og ýmsir aðilar sem tengjast saltfiskverkun. Verið er að byggja hús yfir starfsemina og er stefnt að því að opna setrið í haust. Árni komin á fullt hjá FFSÍ Árni Bjarnason tók við formennsku í Farmanna- og fiskimannasam- bandinu í byrjun árs eftir nokkuð sögulegar formannskosningar á þingi sambandsins undir lok síðasta árs. Árni er smám saman að setja sig inn í mál FFSÍ, eins og kemur fram í kaffibollaspjalli við Ægi. Notkun timburs í matvælaiðnaði Notkun timburs í matvælaiðnaði, þ.á.m. við verkun á saltfiski, virðist ekki skapa meiri hættu en noktun plast- og stálefna. Þetta má meðal annars lesa út úr niðurstöðum norræns verkefnis um notkun timburs í matvælaiðnaði, sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins tók þátt í af Íslands hálfu. Sigurjón Arason og Birna Guðbjörnsdóttir á Rf gera grein fyrir þessu rannsóknaverkefni í athyglisverðri grein. Hvalveiðar/hvalaskoðun Á nokkrum stöðum á landinu er hvalaskoðun orðin mikilsverður liður í ferðaþjónustunni. Þeir sem stunda hvalaskoðun telja að hvalveiðar hafi mjög neikvæð áhrif á atvinnugreinina og í þeirra hópi er Ásbjörn Björgvinsson, forstöðumaður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík. Á allt annarri skoðun er Konráð Eggertsson, þekktur sem hrefnuveiðimaður, sem telur að hval- veiðar og hvalaskoðun geti vel farið saman. Ægir tekur púlsinn á málinu. Brottkast ýsu á Íslandsmiðum Brottkast á fiski hefur mikið verið í umræðunni að undanförnu, enda stórt mál. Í athyglis- verðri grein fjallar Ólafur Karvel Pálsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnuninni, um brottkast á ýsu á Íslandsmiðum, metið með lengdarháðri aðferð. Í greininni kemur m.a. fram að meginhluti brottkasts ýsu eigi sér stað í botnvörpuveiðum og er þá tekið mið af árunum 1988 til 2000 og er mestur hluti brottkastaðrar ýsu smár fiskur, minni en 45 cm að lengd. Í B L A Ð I N U Útgefandi: Athygli ehf. ISSN 0001-9038 Ritstjórn: Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Akureyri Sími 461-5151 Bréfasími 461-5159 Ritstjóri: Jóhann Ólafur Halldórsson (ábm.) Auglýsingar: Athygli ehf. Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, Sími 515-5200, Bréfasími 515-5201 Auglýsingastjóri: Inga Ágústsdóttir Sími 515-5206 GSM 898-8022 Hönnun & umbrot: Athygli ehf. Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, Sími 515-5200, Bréfasími 515-5201 Prentun: Gutenberg ehf. Áskrift: Ársáskrift Ægis árið 2002 kostar 6600 kr. Áskriftarsímar 515-5200 & 515-5207 Forsíðumynd blaðsins tók Hreinn Magnússon af Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári. Eftirprentun og ívitnun er heimil, sé heimildar getið. 26 14 19 22 32 8

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.