Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2002, Blaðsíða 18

Ægir - 01.03.2002, Blaðsíða 18
18 V E I Ð A R F Æ R I „Við teljum sameininguna hafa tekist afar vel,“ segir Daníel, „fyr- irtækið býður nú allar gerðir veiðarfæra og stóran hluta af nauðsynlegum dekkbúnaði. Jafn- framt höfum við aukið mjög úr- val af sjófatnaði, hnífum, stálum o.fl. Við teljum okkur geta boðið hagkvæmar heildarlausnir í veið- arfærum og búnaði. Viðskiptavin- ir hafa tekið þessum breytingum vel og velta fyrirtækisins hefur aukist töluvert“ segir Daníel Þór- arinsson hjá Ísfelli-Netasölunni. Nýr togvír frá Bridon Fyrir rúmu ári tók Ísfell-Netasal- an í sölu Dyform „Star Fish“ tog- vír frá Bridon Fishing. Dyform „Star Fish“ togvírinn er frábrugð- inn eldri gerðinni að því leyti að utan um stálkjarna vírsins er mótaður plastkjarni þannig að hver þáttur í vírnum hefur sitt „sæti“ til varnar innri núningi. Reynslan sýnir að „Star Fish“ hef- ur meiri endingu en eldri gerðir. Að sögn Magnúsar Eyjólfssonar hefur fyrirtækið nú þegar selt þennan togvír um borð í tólf tog- ara, bæði hérlenda og erlenda. „Bridon Fishing ákvað að reyna þennan vír um borð í fimm ís- lenskum togurum í fyrra og reynslan er mjög góð. Með því að hafa stálkjarnan klæddan með plasti heldur vírinn brotþolinu og kemur í veg fyrir innri núning og það er einmitt það sem menn hafa verið leita eftir,“ segir Magnús. Nýjung í keðjum Magnús lætur þess getið að fyrir- tækið Parsons Chain, sem Ísfell- Netasalan hafi umboð fyrir hér á landi, muni kynna á sjávarútvegs- sýningunni í Glasgow í apríl nýj- ung varðandi keðjur. „Ég býst við að þessi nýjung, sem ég tel að eigi eftir að verða töluvert bylt- ingarkennd, komi á markaðinn í maí. Við stöndum fyrir hópferð á sjávarútvegssýninguna í Glasgow og munum einnig m.a. sækja þessa keðjuverksmiðju heim og kynna okkur þeirra framleiðslu- vörur og nýjungar,“ segir Magnús Eyjólfsson. Netagreiðarar frá Rapp Hydema Í dekkbúnaði hefur Ísfell-Netasal- an m.a. á boðstólum netagreiðara og netaspil frá Rapp Hydema Syd. Netagreiðari er hannaður fyrst og fremst fyrir þorskanet og grásleppunet. „Netagreiðarinn er kominn um borð í flesta netabáta,“ segir Jón V. Óskarsson, sölustjóri neta hjá Ísfelli-Netasölunni, „ og verður sjálfsagt innan skamms einnig í öllum grásleppubátum.“ „Við bjóðum m.a. gæðanetin frá NICHIMEN THAI NYLON og KING CHOU. Báðar þessar gerðir hafa sannað ágæti sitt á undanförnum árum og sala þeirra aukist jafn og þétt.“ Sigurnaglalínan sækir í sig veðrið „Við bjóðum sigurnaglalínu, sem hefur verið að styrkja sig mjög á heimsmarkaði,“ segir Daníel Þór- arinsson. „Línubáturinn Kristinn Lárusson í Sandgerði er með slíka línu 9mm í fullum gangi og um borð í Sævík hefur hún verið til prufu og reynst afar vel. Þá erum við einnig með góðar sigurnagla- línur fyrir minni bátana, 4,5 mm, 5,0 mm, 5,5 mm og nýlega bætt- ist 6,0 mm í úrvalið,“ segir Daní- el. Erfitt er að spá fyrir um framtíð línuveiðanna hér við land, ekki síst í ljósi þröngrar kvótastöðu margra báta. Hins vegar bendir Daníel á að á síðasta ári hafi línu- veiðarnar gefið hvað mest allra veiðiaðferða. Fyrirtækin Ísfell og Netasalan voru sameinuð sl haust. Til þess að fá upplýsingar um hvernig sameining fyrirtækjanna hefði gengið leitaði Ægir svara hjá þeim þremur mönnum sem veita sölumálum forstöðu í fyrirtækinu; Daníel Þór- arinssyni, markaðsstjóra og sölustjóra línuvara, Magnúsi Eyjólfssyni, sölustjóra togveiðarfæra og Jón V. Óskarssyni, sölustjóra neta. Ísfell-Netasalan í Reykjavík: Heildarlausnir í veiðarfærum Þrír af stjórnendum Ís- fells-Netasölunnar ehf. - Daníel Þórarinsson, Jón V. Óskarsson og Magnús Eyjólfsson. Mynd: Sverrir Jónsson.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.