Ægir - 01.03.2002, Page 16
16
F R É T T I R
Stígandi VE-77
Óskum útgerð og áhöfn
til hamingju með nýja skipið.
Netagerðin Höfði á Húsavík er
rótgróið fyrirtæki þar í bæ sem
hefur fyrst og fremst þjónað
heimamarkaðnum, en einnig
þjónustar fyrirtækið fleiri aðila.
Áður var Höfði í eigin húsnæði
á Suðurgarði, þar sem GPG-fisk-
verkun er núna, en nú er fyrir-
tækið í leiguhúsnæði, í svoköll-
uðu Uggahúsi, sem er líka á hafn-
arsvæðinu.
„Við erum í alhliða netagerð,
mest erum við í uppsetningu á
nýjum veiðarfærum,“ segir Kári
Páll Jónsson, framkvæmdastjóri
Höfða. „Fyrst og fremst erum við
að vinna fyrir útgerðaraðila hér á
staðnum, en ég gæti trúað því að
rúmlega þriðjungur starfseminnar
í fyrra hafi verið fyrir báta og skip
utan Húsavíkur,“ sagði Kári og
nefndi að Höfði væri til dæmis
með veiðarfæragerð fyrir rækju-
frystitogarann sem til skamms
tíma hét Húsvíkingur og var í
eigu Fiskiðjusamlags Húsavíkur.
„Þetta skip er gert út frá Noregi,
að ég held undir rússnesku flaggi
og er að veiðum á Flæmska hatt-
inum,“ segir Kári.
Kári hefur verið í netagerðinni
síðustu fimmtán ár og segir hann
að ýmislegt hafi breyst á þessum
tíma, fyrst og fremst er viðvíkur
þeim efnum sem eru í veiðarfær-
unum
Húsavík er
stærsti mark-
aður Höfða
Í byrjun mars samþykkti Alþingi
breytingu á lögum um lögskrán-
ingu sjómanna sem herðir á kröf-
um um að sjómenn sæki öryggis-
fræðslunámskeið hjá Slysavarna-
skóla sjómanna eða öðrum viður-
kenndum aðila.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Íslands, er
ánægður með hert ákvæði í lög-
um um lögskráningu sjómanna.
„Í gömlu lögunum var ákvæði
um að sjómenn fengju sex mán-
aða frest til þess að fara á öryggis-
fræðslunámskeið frá einhverjum
tilteknum tíma. Því miður kom í
ljós að margir sinntu þessu ekki
sem skyldi,“ sagði Sævar. Hags-
munasamtök í sjávarútvegi, sjáv-
arútvegsráðuneytið og Slysavarna-
skóli sjómanna skoðuðu hvað
unnt væri að gera til þess að bæta
úr þessu og var niðurstaðan að
leggja til hert lagaákvæði sem nú
hefur verið staðfest af Alþingi.
Lagabreyting um lögskráningu