Ægir - 01.03.2002, Síða 19
19
M AT V Æ L A I Ð N A Ð U R
Algengasta notkunin á timbri í
matvælaiðnaði er í brettum og
límtré í byggingar (mynd 1). Ein
er þó sú tegund matvælagerðar
þar sem tré hefur verið og er enn
mikið notað en það er íspinna-
gerð. Þar er verið að leita eftir
ákveðnum kostum en efnið sem
best er að nota í íspinna þarf að
vera sterkt, fara vel í munni og
má ekki gefa bragð. Þar fyrir utan
er timbur einangrandi og tefur
fyrir bráðnun íssins. Þetta dæmi
stingur dálítið í stúf við þær full-
yrðingar, sem áðurnefndar reglu-
gerðir byggja margar á, að timbur
sé óhæft til notkunar í matvæla-
vinnslu í hvaða formi sem er, án
tillits til gerðar og eiginleika
þess.
Niðurstöður úr norrænu verk-
efni, sem Rf er m.a. þátttakandi í,
munu vonandi varpa ljósi á það
hvort reglugerðir þær er banna
notkun timburs í matvælaiðnaði
eigi rétt á sér eða ekki. Hver svo
sem endanleg niðurstaða verður
þá mun hún a.m.k. verða byggð á
vísindalegum rannsóknum.
Verkefnið er unnið í norrænni
samvinnu og er þátttaka Rf að
hluta til styrkt af Norræna Iðn-
þróunarsjóðnum. Það er einnig
unnið í góðri samvinnu við ýmsa
framleiðendur og notendur á
timbri (Límtré hf, Samskip,
BYKO, Aðföng, Skinney-Þinga-
nes og SÍF). Fiskistofa, sem hefur
eftirlit með fiskvinnslu þar sem
enn er töluvert um notkun á
timbri, er einnig aðili að verkefn-
inu. Niðurstöðurnar eru að hluta
til ætlaðar til stuðnings eftirlits-
kerfinu þegar verið er að beita
reglugerðarákvæðum. Reglugerð-
ir undanfarinna ára hafa haft þær
afleiðingar að nú er tré lítið notað
í beinni snertingu við matvæli og
þá hafa alþjóðlegar kröfur um
hreinlæti í matvælaiðnaði haft
sömu áhrif. Plast, málmar og
önnur efni, sem draga síður í sig
raka, eru nú mun meira áberandi
í þeim flötum og í beinni snert-
ingu við matvæli. Þrátt fyrir það
er á Norðurlöndunun enn notað
umtalsvert magn af timbri í um-
búðir og bretti fyrir matvælaiðn-
aðinn. Notkunin í Svíþjóð, Dan-
mörku og Noregi er þannig um
200.000 m3 á ári. Við þetta bæt-
ist það timbur sem notað er í
byggingar, innréttingar o.þ.h.
Notkun timburs
í matvælaiðnaði
Timbur hefur verið notað öldum saman við verkun, geymslu og fram-
leiðslu á matvælum. Í fiskvinnslu, sem og í öðrum matvælaiðnaði á Ís-
landi, er enn notað töluvert af timbri í vinnsluferlum, í byggingarefn-
um og við flutning matvæla. Á undanförnum árum og áratugum hafa
hins vegar ýmsar reglugerðir verið settar sem banna notkun á timbri í
tengslum við matvælavinnsluferla, án þess að fullnægjandi vísindaleg
rök hafi verið færð fyrir þessum ákvörðunum, en reglugerðir ættu þó
helst að byggjast á niðurstöðum úr tilraunum en ekki á tilfinningum.
Birna Guðbjörnsdóttir
Mynd 1. Algeng notkun á timbri í matvælaiðnaði
Sigurjón Arason
Höfundar eru starfsmenn
Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins