Ægir

Volume

Ægir - 01.03.2002, Page 22

Ægir - 01.03.2002, Page 22
22 „Vísindamenn Hafrannsókna- stofnunarinnar staðhæfa að hvalir í Norður-Atlantshafi éti yfir 2 milljónir tonna af fiskmeti á ári og þar af töluvert af þorski. Til- lögur þeirra gera ráð fyrir veiðum á 250 hrefnum og 100 langreyð- um árlega. Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafró sagði fyrir ekki löngu í blaðaviðtali að veiðar á 250 hrefnum, úr stofni sem teldi 58-70.000 dýr, hefði engin áhrif á stofninn, „þetta væri eins og dropi í hafið“ var haft eftir hon- um. Að því slepptu að stofnarnir þoli veiðar er ekki þar með sagt að veiðarnar komi til með að skapa þau verðmæti sem sumir halda fram. Samkvæmt alþjóða- lögum er öll verslun og viðskipti með afurðir af hvölum nú bönn- uð. Hugsanlegt er að hrefnan verði flutt niður um flokk innan CITES þannig að hægt verði að selja afurðirnar. Ég sé ekki margt benda til þess að langreyður verði flutt niður um flokk í náinni framtíð og því er alls óvíst hvort hægt verði að veiða þær á kom- andi árum. Meðan allur útflutn- ingur á hvalaafurðum er bannaður og ekkert liggur fyrir um að veið- ar á langreyðum verði samþykkt- ar af Alþjóðahvalveiðiráðinu get ég ekki séð að hvalveiðar muni skapa þau verðmæti sem haldið hefur verið fram,“ segir Ásbjörn Þ. Björgvinsson. Miklar tekjur af hvalaskoðun Í þessari umræðu er Ásbjörn ósáttur við hversu lítið menn geri úr gildi hvalaskoðunar fyrir hér- lenda ferðaþjónustu, sem hann segir að hafi vaxið hraðar en nokkur annar þáttur í ferðaþjón- ustunni. „Í þessu sambandi er vert að benda á þá staðreynd að ýmsir erlendir vísindamenn og hvalaskoðunarsérfræðingar hafa lýst því yfir að Ísland sé einn besti hvalaskoðunarstaður í heimi og vöxtur sé fyrirsjáanlegur í þessari grein ferðaþjónustunnar á komandi árum. Lausleg saman- tekt á efnahagslegu gildi hvala- skoðunarferðamennsku fyrir þjóð- arbúið bendir til að beinar tekjur Lengi hefur verið í umræðunni að hefja beri hvalveiðar hér við land á nýjan leik og í ljósi þess að vilji Alþingis í þeim efnum liggur fyrir og ráðherrar hafa gefið sterkt til kynna að veiðar verði hafnar áður en langt um líður, virðist mega ætla að meiri líkur séu en minni á því að hvalveiðar hefjist á ný áður en langt um líður. Ásbjörn Þ. Björgvinsson, forstöðumaður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík, segir að algengasta röksemdin fyrir því að hefja hvalveiðar á ný hafi verið sú að það verði að veiða hvalina áður en þeir éti okkur út á gaddinn. Skiptar skoðanir um hvort hvalaskoðun og hvalveiðar eiga samleið: Tel tímabært að tekið sé mark á þessari atvinnugrein - segir Ásbjörn Björgvinsson, forstöðumaður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík Bátafloti Norðursiglingar á Húsavík. Þar á bæ gerðu menn upp þessa fallegu eik- arbáta og hafa notað í hvalaskoðunina. Hörður Sig- urbjarnarson, framkvæmda- stjóri Norðursiglingar, segir að fyrirtækið hafi alltaf lagt mikla áherslu á að varðveita þessa gömlu og fallegu báta. Myndir: Norðursigling.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.