Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.2002, Qupperneq 37

Ægir - 01.03.2002, Qupperneq 37
Vélsmiðjan Foss ehf. á Höfn í Hornafirði er tíu ára gamalt fyrirtæki, sem auk þss að veita alhliða viðgerðarþjónustu við sjávarútveginn hefur þróað fjöl- þættan búnað til nota í sjávar- útvegi. Meðal þess sem fyrirtækið hefur verið að vinna að er smíði á ýmsum búnaði er lýtur að netaveiðum, til dæmis vindum og fl. Og sem dæmi má nefna að Foss hefur einnig smíðað löndunar- og flutningskerfi fyr- ir síld og loðnu sem og dælur fyrir þessar uppsjávartegundir. Ari Jónsson, sem á fyrirtækið á móti Eiríki bróður sínum, segir að lykilatriði sé að vera í nánum tengslum við sjómenn- ina og þá sem nota þennan búnað. Með slíku nánu sam- starfi sé unnt að þróa vörurnar markvisst og bæta. Á bilinu 6 til 10 starfsmenn starfa hjá Foss ehf. á Höfn. Fyr- irtækið er búið öflum búnaði til smíði og véla- og skipavið- gerða. Til dæmis er fyrirtækið með nýlega TOS-fræsivél og Harrison-Alpa 550 tölvustýrð- an rennibekk. 37 V E I Ð A R F Æ R I mynd B). Ekki liggur fyrir hald- bær skýring á þessu. Ástand og þróun ýsustofnsins hefur á undanförnum árum gefið tilefni til spurninga varðandi nýt- ingu stofnsins. Sterkir árgangar hafa komið reglulega fram í ný- liðunarmælingum en ekki skilað sér inn í veiðistofninn í þeim mæli sem spár gerðu ráð fyrir og því ekki leitt til þess afla sem vonir stóðu til. Brottkast ýsu á undanförnum árum gæti ef til vill skýrt þetta að hluta. Önnur upp- spretta óskráðra, veiðiháðra dauðsfalla gæti verið svonefndur smugdauði, en það eru dauðsföll sem hljótast af sárum, einkum hreistursárum, sem fiskurinn kann að hljóta meðan hann þvælist í veiðarfærinu innan um aðra fiska, eða þegar hann smýgur út um mösvana. Slík dauðsföll hafa verið metin á bilinu 11-52% í tilraunum með 70-110 mm möskva í poka (Sangster o.fl. 1996). Þakkir Gunnar Stefánsson, tölfræðingur, veitti ráðgjöf um aðferðina við að meta brottkast. Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri sjávarútvegsráðu- neytisins, rakti langa, og oft tor- ræka, slóð reglugerða um lág- marksstærðir fiska og veiðarfæra. Sigurlína Gunnarsdóttir, bóka- safnsfræðingur, leitaði heimilda um brottkast fyrr á tímum. Heimildir Anon., 2001. Nytjastofnar sjávar 2000/2001. Aflahorfur fiskveiðiárið 2001/2002. Hafrannsóknastofnunin, Fjöl- rit nr. 80, 186 bls. Ásgeir Jakobsson, 1979. Tryggva saga Ófeigssonar. Skuggsjá - Bókabúð Olivers Steins sf., 400 bls. Jónas Guðmunsson, 1982. Togaramaður- inn Guðmundur Halldór. Bókaútgáfan Hildur, 173 bls. Magnús Runólfsson og Guðjón Friðriks- son, 1983. Togarasaga Magnúsar Runólfs- sonar skipstjóra. Bókaútgáfan Örn og Ör- lygur, 186 bls. Ólafur K. Pálsson, 2002. A length based analysis of haddock discards in Icelandic fisheries. Fisheries Research (í prentun). Sangster, G. I., K. Lehmann and M. Breen, 1996. Commercial fishing ex- periments to assess the survival of haddock and whiting after escape from four sizes of diamond mesh cod-ends. Fis- heries Research, 25(3-4): 323-345. Foss ehf. Nýsmíði og viðgerðir

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.