Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.2002, Side 40

Ægir - 01.03.2002, Side 40
40 V E I Ð A R F Æ R I Auto-Trawl kerfið er orðið mjög vel þekkt hér heima og einnig á markaði erlendis, t.d. í Noregi, Færeyjum, Chile, Banda- ríkjunum, á Spáni og Nýja Sjá- landi. Búnaðurinn fór meðal ann- ars um borð í hafrannsóknaskipið Árna Friðriksson og í framhaldi af því var ákveðið að taka vindubún- að frá Naust Marine um borð í hafrannsóknaskip bresku hafrann- sóknastofnunarinnar, sem nú er í smíðum í Ferguson skipasmíða- stöðinni í Glasgow. Búnaðurinn frá Naust Marine þykir eftirsóknarverður m.a. vegna þess hversu hljóðlátur hann er. „Já, það er alveg rétt að einn af helsu kostum þess togvindubún- aðar sem við seljum er að hann er mjög hljóðlátur. Í samanburði við glussavindubúnað þeirra fyrir- tækja sem keppa mest við okkur, sem eru fyrst og fremst Rolls Royce og Rapp Hydema, erum við með mun hljóðlátari raf- magnsdrifin spil,“ segir Ásgeir Erling Gunnarsson hjá Naust Marine. Sem heildarkerfi er Auto-Trawl kerfið hannað og þróað af Naust Marine, en spilin hefur fyrirtækið keypt af Ibercisa, vinduframleið- anda á Spáni sem hefur lagað það að þörfum Naust Marine. „Þessi spil eru fyrst og fremst frábrugðin öðrum spilum sem hér hafa verið á markaðnum hvað varðar gerð tannhjólanna að því leyti að þau eru skátennt og sérstaklega afrétt. Þetta gerir það að verkum að vindubúnaðurinn er mjög hljóð- látur og það er vissulega eftir- sóknarverður kostur,“ segir Ás- geir. Bætt orkunýting Nýverið setti Naust Marine þriðju vinduna í Sisimiut, sem er einn af frystitogurum Royal Greenland. Það sem er fréttnæmt við það er að þessi vinda er raf- drifin og var ATW kerfið sam- hæft Rolls Royce togvindukerf- inu sem var um borð. Þessi lausn er sérstaklega hentug þar sem Naust Marine vindan nýtir þá orku sem var til staðar mun betur en glussavindurnar þannig að ekki þurfti að gera sérstakar ráð- stafanir vegna orkuframleiðslu. „Þetta eru eins og töfrabrögð,“ sagði skipstjórinn á Sisimiut þeg- ar hann sá að amper mælirinn sýndi nánast sömu straumnotkun á toginu með þrjár vindur og hann var vanur að sjá með tvær togvindur áður. Skýringin er sú að ATW kerfið bætir heildarnýtni í rafmagnsframleiðslunni, auk þess sem búnaður í ATW kerfinu minnkaði THD bjögun á netinu verulega. Lækkandi verð á rafmagnsvindum Naust Marine hefur í samstarfi við framleiðendur drifbúnaðar og vindubúnaðar unnið að nýrri hönnun á minni vindum, með þeim árangri að ný kynslóð raf- magnsvinda er að líta dagsins ljós. Með notkun fjöldafram- leiddra rafmótora, tíðnibreyta og pánetugíra hefur tekist að lækka framleiðslukostnað verulega, þannig að í náinni framtíð er fyr- irsjáanlegt að rafmagnsvindur eru ekki eingöngu samkeppnishæfar þegar um öflugustu gerðir tog- vinda er að ræða, heldur einnig þegar um grandaravindur, gilsa- vindur og minni hjálparvindur er að ræða fyrir togara. Ennfremur er í þróun ný gerð 24V rafmagns- vinda fyrir smærri báta og munu þessar nýjungar verða kynntar á sjávarútvegssýningunni í haust. Ný hönnun fiskiskipa „Ég vil líka nefna það að við höf- um verið að vinna með Skipasýn Togvindukerfi frá Naust Marine hafa vakið mikla athygli: Hljóðlátari kerfi en áður hafa þekkst Naust Marine var stofnað árið 1993 og á fáum árum hefur fyrirtækið náð afar sterkri stöðu í sölu á ýmsum búnaði fyrir sjávarútveginn. Ekki síst er fyrirtækið þekkt fyrir ATW togvindukerfið (Auto-Trawl), sem er fyrir allar gerðir togara. Nokkrir af starfsmönn- um Naust-Marine standa hér við svokallaðan tíðnibreytaskáp fyrir rannsóknavindu í breskt hafrannsóknaskip. Frá vinstri: Þorgrímur Pét- ursson, Ingvar Ágústs- son, Birgir Úlfsson, Kristinn Hallsson og Ás- geir Erling Gunnarsson. Mynd: Sverrir Jónsson.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.