Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.2002, Side 11

Ægir - 01.10.2002, Side 11
11 F R É T T I R Seigla ehf. í Reykjavík hefur smíðað og selt hraðfiskifbátinn Elinu C VN-88 til Christian Christiansen í Kollafirði í Færeyj- um. Þetta er fyrsti hraðfiskibátur- inn sem Seigla selur til Færeyja og telur Sigurjón Ragnarsson hjá Seiglu víst að í kjölfarið verði frekari viðskipti við Færeyinga. Síðastliðið vor afhenti Seigla Henning Jóhannessyni, útgerðar- manni í Grímsey, samskonar bát sem ber nafnið Björn EA-220. Bátnum var áður siglt til Færeyja og hann kynntur þar. Ferðin bar tilætlaðan árangur og fljótlega hófst smíði á því sem næst eins báti fyrir Christian Christiansen í Kollafirði. Um er að ræða bát af gerðinni Seigur 100, sem er rösk níu tonn og um sex brúttórúm- lestir. Lengdin er tíu metrar og breiddin þrír metrar. Til marks um ganghraðann á þessari gerð af bátum tók þrettán og hálfa klukkustund að sigla Birni EA til Færeyja frá Vestmannaeyjum. Siglingaleiðin er 370 sjómílur og var meðalhraðinn á leiðinni 28 sjómílur. Báturinn er með 1300 lítra olíutank og nam eyðslan á þessari leið um 1100 lítrum. Fyrsti báturinn smíðaður 2001 Í janúar 2001 afhenti Seigla Magnúsi Gústafssyni í Hólmavík fyrsta bátinn af gerðinni Seigur 1000 og heitir hann Hafbjörg ST- 77. Annar báturinn var Draumur RE-302, þriðji Steini Randvers SH-147 og fjórði var síðan Björn EA-220, sem eins og áður segir fór til Grímseyjar. Upphaflega annaðist Seigla ehf. viðgerðir og breytingar á bátum, en nú leggur fyrirtækið meiri áherslu á smíði báta, samkvæmt hönnun þeirra Sverris Bergssonar og Sigurjóns Ragnarssonar, auk þess sem sjó- menn hafa miðlað reynslu sinni og þekkingu og þannig lagt hönnuninni lið. Útkoman er öfl- ugur og hraðskreiður fiskibátur sem eins og áður segir hefur verið að vekja athygli bæði hér heima og í Færeyjum. Afhendingarverð á Elinu C til Færeyja var um 21 milljón króna. Nóg að gera í vetur „Færeyjabáturinn er nánast eins og Björn RE í Grímsey, nema við breyttum mastrinu eilítið. Mastr- ið á Elinu C er úr plasti, en áður var það úr járnagrind,” segir Sig- urjón Ragnarsson. „Við fundum strax mikinn áhuga í Færeyjum fyrir þessari gerð af báti og það er engin spurning að þessi nýi bátur mun hjálpa okkur frekar á mark- aðnum þar ytra. Ég held að eng- inn vafi sé á því að þessir bátar henta mjög vel í Færeyjum, ekki síst vegna þess hversu hraðgengir þeir eru. Við komumst að raun um að við vorum álíka fljótir að fara á bátnum á milli staða í Fær- eyjum eins og að fara á bíl og með ferjum,” sagði Sigurjón. Hann sagði að nú þegar væri nokkuð víst um frekari bátasmíði fyrir Færeyinga. „Síðan erum við með tvo eða jafnvel þrjá báta selda hér heima. Það lítur því út fyrir að yfirdrifið verði að gera hér í vetur í nýsmíði,” sagði Sigurjón, en átta starfsmenn eru hjá Seiglu. Seigla selur hraðfiskibát til Færeyja: Bjartsýnn á frekari viðskipti við Færeyinga - segir Sigurjón Ragnarsson hjá Seiglu Úr stýrishúsi Elinar C. Vistarverur Elinar C eru ekkert slor! Nýjasti bátur Seiglu ehf., Elin C VN-88, hefur verið afhentur Christian Christiansen í Færeyjum.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.