Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.10.2002, Qupperneq 23

Ægir - 01.10.2002, Qupperneq 23
23 E R L E N T Kvótinn er gulls ígildi Svein Ludvigsen, sjávarútvegsráðherra Noregs, hefur ákveðið að leyfa bæði sameiningu kvóta og samvinnu um að veiða kvóta dagróðrarbáta undir 28 metrum. „Þar með getur kvótinn þinn orðið gulls ígildi þótt þú veiðir hann ekki sjálfur,” segir Fiskaren. Fækkun báta frjáls ákvörðun Kerfisbreytingin tekur til hvers fylkis fyrir sig og menn ákveða sjálfir fækkun báta sem eru milli 15-28 metra langir. Hins vegar er samvinna um að veiða kvóta ekki bundin við stærð báta svo að hana geta minnstu bátarnir líka nýtt sér. Eftir að breytingin hefur verið rædd í fiskveiðisamtökunum ætlar Ludvigsen að leggja fram tillögur sem miða að því að hagstætt verði að fækka dagróðrarbátum þannig að útgerð hvers báts verði hagkvæmari og flotinn sem best lagaður að úthlutuðum kvóta. Kjarninn í tillögum ráðuneytisins er framsal kvóta. Reglurnar eiga að gilda um alla kvótasetta fiskistofna og eru bundnar við fylki hvað varðar kvóta þorsks, ýsu og ufsa. Framsal kvóta á einungis að gilda milli báta í hverjum hinna fjögurra lengdarflokka, sem dag- róðrarbátar eiga að skiptast í: 0-9,99 m, 10-14,99 m, 15-20,99 m og 21-27,99 m. Undanþegið er þó framsal kvóta milli báta undir 28 m í sama sveitarfélagi. Opnar möguleika á kvótaskiptum Framsal kvótans á að gilda í eitt kvótaár í einu og ekki verður leyfilegt að framselja kvóta af sömu fiskitegund í meira en þrjú ár á fimm ára tímabili. Kerfisbreytingunni er ætlað að auka hagkvæmni með því að auka kvóta hvers báts. Hún gerir líka mögulegt að bátar skipti á kvóta þannig að hver bátur geti veitt nær heimahöfn og þar með lækkað útgerðarkostnað að því tilskildu að einhver sem býr lengra burtu vilji skipta. 15-28 m bátum fækkað Reglurnar kveða á um að dagróðrarbátur sé samfellt gerður út. Tímabundin kvótasetning gildir um kvóta allra fiskitegunda sem leyfð er takmörkuð veiði á og annaðhvort fyrir 15-28 eða 21- 28 m báta. Í reglum um úthlutun kvóta er kveðið á um annaðhvort tímabundna úthlutun eða úthlutun á föstum kvóta gegn úreldingu. Reglurnar um kvótasetningu þorsks, ýsu og ufsa taka til hvers fylkis fyrir sig. Ef reglurnar verða látnar gilda um báta niður í 15 m með þeim stærðartakmörkunum sem gilda í hverju sveitarfélagi verður bátunum skipt í tvo lengdarflokka. Enda þótt útgerðum verði gefnar frjálsar hendur um breytingar samkvæmt þessum reglum er búist við að þær skapi umræðu bæði á landsvísu og í einstökum sveitarfélögum. Reglurnar eru afar líkar þeim sem gilt hafa í úthafsveiðiflotanum og hafa valdið því að kvótinn hefur nú safn- ast á mjög fáar hendur. Þegar ég stóð við brúargluggann og himinhá aldan kom æðandi eins og kolsvartur ógvekjandi veggur á móti skipinu, fann ég að við mennirnir erum ósköp litlir og megum okkur lítils þegar veðurofsinn er í ham Ég sit heima og treysti því - og get ekki annað. Jesús sagði: „Ég er með yður alla daga, allt til enda veraldarinnar.” Í versinu í Matteusarguðspjalli segir frá því að Jesús hafi hastað á vindinn og vatnið og varð stilli- logn. Guð getur gefið frið og gripið inn í hvaða kringumstæður sem er. Í Davíðssálmi 107:29 versi seg- ir: „Hann breytti stormviðrinu í blíðan blæ, svo að bylgjur hafsins urðu hljóðar.” Guð getur lægt storminn, gert hann sléttan eins og spegil, huggað hrellda og sorgmædda, grætt sár og endur- reist það sem hefur brostið og hann getur rétt af þá slagsíðu sem við höfum kannski í lífi okkar eða á eftir að koma. Jesús sagði: „Minn frið gef ég yður, ekki gef ég eins og heimurinn gefur.” Að lokum skulum við muna þetta. Þó svo að bylgjurnar gangi yfir bátinn og þó svo að okkur finnist að Jesús sofi og sé langt frá okkur, þá er hann í bátnum og segir okkur að vera ekki hrædd. Hann hastar á vindinn og gefur stillilogn. Hann gefur sannan frið. Mig langar til þess að ljúka þessari predikun með því að lesa litla bæn, sem ég fer stundum með þegar litla dóttir mín er að fara að sofa. Trúðu á tvennt í heimi, tign sem æðsta ber. Guð í alheims geimi, og Guð í sjálfum þér. Vertu Guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. (Millifyrirsagnir eru blaðsins.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.