Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1963, Page 17

Símablaðið - 01.12.1963, Page 17
Kópavogur fyrr og nú Þó að æsku Kópavogs megi þykja það með ólíkindum, — þá hafa þeir ekki allir gerzt gamlir, sem muna þá tíð, er þeir fóru gönguferðir úr höfuðstaðn- um og suður á Digranesháls upp af Kópavogi, á fögrum sumardegi, til að draga að sér hreint loft, og líta hina fjölbreyttu og stórbrotnu náttúru er þaðan blasir við sjónum manns. En það var í þá daga, meðan mann- skepna höfuðstaðarins átti sér enn nóg landrými út frá Austurvelli og í holt- unum austan við læk. 1 þá daga, þegar Vesturhær og Austurbær voru tvö ríki og vörðu landamæri sín með trésverð- um. A Kópavogshálsi bjuggu þá enn álf- ar í klettum og hólum og hörn áttu sér þar friðland á berjamó, ásamt lóum og spóum. Á háhálsinum, þar sem háhýsi og þéttar húsaraðir byrgja nú útsýn, tóku göngumenn sér hvíld, ekki fyrst og fremst til að virða fyrir sér vogana og nesin, Snæfellsjökul og Esjuna, — því víðar frá var þá mikilfenglegu sjón að sjá, en fremur til að renna augum til staða, þar sem saga hafði gerzt, — og rifja hana upp. En þaðan sást til nokkurra þeirra, þar sem áður voru ráðin grimm örlög einstaklingum, þegar „þing var sett í Kópavogi“, og þar sem gerðist einn harmsögulegasti atburður í lífi þjóðarinnar allrar. Þaðan sást til Bessastaða, sem áttu eftir að verða tignasta setur landsins, en þar sem hið danska konungsvald trónaði áður fyrr yfir varnarlitlum lýð, stundum sæmilegt, stundum með klærn- ar úti, og þar sem um skeið var mikið menntasetur. Yzt á Álftanesi sést til hinnar fornu hafnar, Seilunnar, þar sem tyrkneskir ræningjar sigldu að landi 1627 og hið danska vald á Bessastöðum, sem búið hafði um sig á landi til varnar, brast kjark til að skjóta á strandað skip ræn- ingjanna, sér til ámælis og háðungar. Á Seilunni lágu einnig herskip Danakonungs, sem ógnvaldur meðan Bjelke höfuðsmaður gekk með her- mönnum af þeim undir alvæpni til Kópavogsþings. Að þeim stað beinast augu göngumanns fyrst og fremst. En að honum hefur margur maður, með íslenzkt hjarta, steytt hnefa sína í Dana- hatri þær þrjár aldir, sem síðan eru liðnar. „Þing var sett í Kópavogi.“Þessigamla frásögn hefur í þrjár aldir beint huga Tslendinga að einu myrkasta tímabili í sögu þjóðarinnar. — Og fyrir hugskotssjónir göngumanns- ins á Digraneshálsi bregður skuggaleg- um myndum er hann lítur til þessa stað- ar. Þar sér hann umkomulausa menu leidda til gálgans að gengnum dómi fyr- ir sakir, sem okkur eru óskiljanlegar nú. Þar sér hann blika á Kópavogslæk, l)angað sem ungar konur voru færðar hina hinztu göngu, fyrir það, að guð hafði gefið þeim mannlegar þrár, sem þær hlýddu. A þessum stað. bregður fyrir mynd- inni af Gissuri biskuni Einarssyni, er bann situr á eintali við útsendara Danakonungs og fvrirliða á tveim her- skipum. Kristófer Hvitfelld, þar sem ^ÍMA'B LAÐ IÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.