Símablaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 30
Hans G. Þormar
er fæddur á Akureyri 25/2
1927. Tók gagnfræðapróf við
Menntaskólann á Akureyri
og hélt þar síðan áfram námi
í tvo vetur. Lærði útvarps-
virkjun á Viðgerðarstofu út-
varpsins á Akureyri.
Var síðan við tæknifræði-
nám við Köpenhavns Maskin
og Elekroteknikum í 3 ár.
Réðist að loknu námi til Rík-
isútvarpsins og vann þar ár-
in 1952—1963, er hann réð-
ist til Landssímans sem
radíótæknifræðingur.
Jón Kr. Valdimarsson
er fæddur 22/1 1938 á Húsa-
vík. Kom til Landssímans
sumarið 1956, sem símvirkja-
nemi, og lauk því námi 1959.
Vann síðan við viðhald sím-
stöðva þar til á árinu
1960, en fór þá til framhalds-
náms í símafræði við Tek-
ingarbréfi og því starfi sem starfsmaðurinn gegnir og
telur því óhjákvæmilegt annað en að reyna að fá þetta
leiðrétt. Víða eru störfin margþætt og þetta því mikið
flóknara en í fljótu bragði má virðast. Má þar nefna störf
fulltrúanna. Þar vill samninganefndin halda fram, að
9. flokks fulltrúi fari í 12. flokk., 8. flokks fulltrúi í 14.
flokk, 7. og 6. flokks fulltrúar í 17. flokk og háskóla-
menntaðir fulltrúar í 21. flokk, en eins og auðsætt er, get-
ur hér ekki verið um algilda reglu að ræða hvað full-
trúana snertir.
Síðast liðinn miðvikudag voru lagðar fyrir samninga-
nefndina 67 einstaklingskærur frá F.f.S. Samningafund-
ur hafði verið boðaður kl. 5 í gær, en var frestað, þar
sem samninganefndin taldi sig ekki tilbúna, og hefjast
umræður um þetta mál væntanlega n.k. mánudag.
Það er erfitt að segja, hve miklu verður þar um þokað,
en þá tekur Kjaranefnd við og er álitið, að ekki verði
langt að bíða að hægt verði að leggja fyrird Kjaranefnd
það, sem ekki næst samkomulag um við samninganefnd,
þar sem umræðum um flokkun starfsmanna allmargra
ríkisstofnana er þegar að verða lokið.
Kjaranefnd er reiðubúin að hefja starf og hefur þeg-
ar haldið nokkra fundi til að ræða um starfstilhögun
en hve lagt verður að bíða lokaúrslita í þessum ágrein-
inðsmálum er enn á huldu. Þetta hlýtur þó óðum að
þokast að lokamarkinu.
í síðustu viku var loks til lykta leitt mál starfsfólks
I. flokks B. stöðva. Samninganefnd ríkisins hafði ekki
viljað viðurkenna starfsfólk á I. flokks B. stöðvum sem
opinbera starfsmenn, er falla eiga undir kjarasamn-
inga þá, er nú standa yfir, þar sem talið var, að flest af
þessu fólki væri ekki formlega ráðið. Kjararáð hélt mál-
inu áfram, þar sem virtist augljóst að þess dómi, að hér
var freklega gengið á rétt 130 manna hóps, sem í strjál-
býlinu starfar, og eru þá stöðvarstjórarnir ekki meðtald-
ir, enda þetta í fullu ósamræmi við ákvörðun fjármála-
ráðuneytisins frá 1958, um rétt þessa fólks, þar sem því
var tilkynnt, að það skyldi njóta réttinda og taka á sig
skyldur þær, er lög nr. 38/1954, um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins ákveða.
Eftir fjölda funda í málinu var fallist á að veita 40
af þessum 130 manna hópi réttinn, en hinum 90 neitað.
Enn var haldið áfram viðræðum og að lokum tókst að
fá rétt þessa starfsfólks viðurkenndan, og varð samkomu-
lagið á þessa lund: Samninganefnd ríkisins fellst á, að
starfsfólk, sem ekki er formlega fastráðið á I. flokks B.
stöðvum hjá pósti og síma, falli undir lög nr. 55/1962
um kjarasamninga opinberra starfsmanna, með eftir-
greindum skilyrðum:
SÍMABLAÐIÐ