Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 29

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 29
legi málflutningur fyrir Kjaradómi var mjög umfangs- mikill. Þann 3. júlí s.l. kvað Kjaradómur upp úrskurð sinn, og mun öllum ljóst að markið var sett hátt, enda vitað að aldrei myndi allt nást, slíkt var óhugsandi. Eigi að síður hefur mikið fengizt, og tel ég, að beri að fagna fengnum árangri, þar sem sýnt er að samkomulagið og niðurstöður Kjaradóms feli í sér verulegar kjarabætur. Ég tel, að heildarstefna samtakanna, sem mótuð var, hafi náð fram að ganga. Mikið starf var nú framundan við framkvæmd samn- inganna, þar á ég við skipan einstakra manna í launa- flokka. Það má óefað segja, að hér sé um að ræða mikið og vandasamt starf, þar sem vitað er að starfsheiti sem launaflokkurinn miðast við, ber ekki einatt saman við störfin, sem starfsmaðurinn hefur með höndum, og kom þetta mjög fljótt í ljós, þegar viðræður um þessi mál hóf- ust. Nú beið félaganna mikið verk, þar sem gjöra þurfti tillögur um skipan einstaklinga í launaflokka. Kjararáð vann síðan úr þessum gögnum félaganna og reyndi að samræma tillögurnar. Þessar tillögur voru svo sendar samninganefndinni sem gerði sínar gagntil- lögur, og var þá séð um hvaða nöfn náðst hafði sam- komulag. Þar sem vitað var, að langt yrði að bíða eftir endanlegri lausn þessara mála, var gjört samkomulag um að byrja að greiða laun samkv. kjarasamningunum 1. september og greitt yrði samkv. lægri flokkuninni, þar sem ekki væri samkomulag, sem svo yrði leiðrétt frá 1. júlí s.l. ef leiðréttingar næðust, annaðhvort í umræðum við samningsnefndina eða fyrir Kjaranefnd. — Skömmu eftir að samninga-viðræðurnar um skipan starfsmanna í launaflokka hófust, virtist sem samningarnir væru að komast í algjört strand. Það var greinilegt, að litlu sem engu fékkst umþokað í samkomulagsátt og bilið víða allt að sex flokkar. Kjararáð ákvað þá að breyta til um vinnubrögð og hætta viðræðum í bili, en undirbúa mál hvers einstaklings, sem ekki var þegar samkomulag um, eins og málið yrði af hendi Kjararáðs lagt fyrir Kjara- nefnd, en reyna þó fyrst að leggja þennan rökstuðning fyrir samninganefndina, þar sem óskað væri eftir skrif- legum svörum og mótrökum. Samninganefndin féllst á þessi vinnubrögð, en kvaðst ekki lofa skriflegum svör- um. Var nú hafist handa og ráðið aukið starfslið á skrif- stofu B.S.R.B. til að aðstoða félögin við fyrr nefnda kröfugerð. Nú kunna sumir að hugsa, hvers vegna gætir svona mikils ágreinings í röðum einstaklinga inn í launa- flokka? Þá er fyrst því til að svara, að Kjararáð telur mjög víða gæta ósamræmis á starfsheiti í skipunar- eða ráðn- Má fullyrða að þar hefur stofnunin fengið í þjónustu sína hóp af ungum mönnum, sem vænta má mikils af. iVi/ir menn Kristján Helgason, sem stundaði tækninám í Osló, sbr. Símablaðið 1. tbl. 1959, og síðan hefur starfað í Radíótæknideild Landssím- ans hefur nú verið ráðinn deildartæknifræðingur. En nýir tæknifræðingar eru þessir: Jón Ármann Jakobsson er fædur 26/1 1935 í Kaup- mannahöfn. Stundaði nám í Loftskeytaskólanum 1953—- 54 og lauk þar prófi. Vann síðan um skeið á Ritsímanum í Reykjavík og á togurum. Árið 1956 fór hann til Englands og hóf nám í E. M. I. College of Electronics í London, og lauk þar prófi 1959. Síðan vann hann í Kaupmannahöfn til ársins 1961. Er nú ráðinn tæknifræðingur hjá Lands- símanum. 5ÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.