Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 31

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 31
1. Að um sé að ræða aðalstarf, sem viðkomandi gegnir sjálfur. 2. Að ekki hafi verið samið um skemmri uppsagnar- frest en þrjá mánuði. 3. Að starfsmaður fullnægi skilyrðum til að vera sjóð- félagi í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. 4. Að starfsmaður hafi gegnt starfinu að minnsta kosti eitt ár. 5. Að starfsmaður hafi náð 18 ára aldri og uppfylli að öðru leyti hæfniskilyrði til að gegna umræddu opin- beru starfi, sbr. 3. gr. laga nr. 38/1954. Kjararáð taldi, að óeðlilega langur tími hefði farið í að fullvissa samninganefnd ríkisins um rétt þessa fólks, og segja má, að umræður um aðra starfshópa hafi legið niðri að mestu á meðan á þessu þófi stóð. Ég veit, að F.Í.S. muni fagna alveg sérstaklega, að sigur skyldi vinnast í þessu máli, og verða tillögur F.Í.S. um röðun þessa starfs- fólks í launaflokka lagðar fyrir Kjararáð næstu daga. í röðun samningsnefndarinnar á þessu starfsfólki kem- ur í ljós greinilegt vanmat á störfum þess. A ég þar við skipan fjölda talsímakvenna í 5. launaflokk, en þessi flokkun sést hvorki á I. flokks A. stöðvunum né í Reykja- vík. Þá eru póstafgreiðslustörfin og sett nær einvörð- ungu í 8. launaflokk „Póstafgreiðslumenn II.“ Þó svo fari, að ekki fáist leiðrétting við samninga- nefnd á þessu ásamræmi á mati starfa starfsfólks á I. flokks A. og I. flokks B. stöðvum. þá verður að sjálf- sögðu máli þessara starfsmanna vísað til Kjaranefndar, fyrst svo vel tókst að þetta starfsfólk var viðurkennt sem samningsaðili, því annars var valdið aðeins ann- ars aðilans, sem sé ríkisvaldsins eða réttara sagt póst- og símamálastjóra. Að lokum vil ég bæta þessu við. Opinberir starfsmenn standa nú á merkum tímamótum, þegar sér fyrir endann á þessum fyrstu kjarasamningum þeirra, sem nú hefur verið unnið að í hálft annað ár. Er ég þess fullviss, að ekki einn einasti aðilji, sem að þessu geysimikla verki hefur unnið, iðri þess. Þvert á móti megum og eigum við öll sameiginlega að fagna þeim þáttaskilum, sem nú eru orðin, eftir áratuga baráttu fyrir samningsréttinum. En þó mikið hafi náðst, þá megum við ekki ætla, að hér sé um heilsteypt verk að ræða, sem hvergi sé mis- smíði á, slíkt væri óhugsandi. Því miður verður að játa, að ýmsir vankantar munu eðlilega finnast og hafa þeg- ar komið í ljós, og hvernig mætti annað ske í fyrstu samningum sem þessum. En það verður að sjálfsögðu takmark, sem stefnt verður að í næstu samningum að lagfæra margt, sem því miður tekkst ekki í þetta sinn. Vil ég því mega vona, að heill fylgi þessu stóra máli okkar síðasta spölinn. niska Institutet í Stokk- hólmi og lauk því námi nú s.l. vor. Var síðan við störf í nokkra mánuði á fjölsíma- deild L. M. Ericsson, en byrjaði að vinna þann 1. nóv. s.l. í símatæknideild Lands- símans. Símablaðið býður alla þessa ungu og efnilegu menn velkomna til starfa í stofn- uninni. Tveiv síttt virlijftir hafa á s.l. ári verið skipaðir síma- og póstafgreiðslumenn. Ragnar Helgason á Húsavík og Eggert Haraldsson á Pat- reksfirði. Ragnar Helgason er fædd- ur 4. marz 1935. Hann lauk símvirkjanámi 1955 og vann síðan á mæliborði Bæjarsím- ans. Hann var skipaður síma- og póstafgreiðslumaður á Húsavík frá 1. okt. s. 1. Framh. á bls. 36. B ÍMAB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.