Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 34

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 34
Eggert Haraldsson er fæddur á Akureyri 12/5 1937. Lauk 3. bekkjar prófi frá Mennta- skólanum þar ’54. Hóf störf við stækkun sjálfvirku stöðv- arinnar í Reykjavík 2. jan- úar 1956. A símvirkjanám- skeiði 1956—1959. Skipaður símvirki 11. ágúst 1959 og hefur síðan starfað á sjálf- virku stöðinni í Reykjavík, þar til 1. október, s.l. Skip- aður síma- og póstafgreiðslu- maður á Patreksfirði frá 1. október 1963. Framleiðsla á þingi B. S. R. B. Við skipum í launaflokka. Skal ekki að neinu flana. Þarna setjum við hænu og þarna setjum við hana. P. B. Nú hafa flestir fundið náð fyrir augum þínum. Hvernig gaztu, kjararáð kollsteypt vonum mínum? S. H. Setjum niður jaml og jag, jöfnum deilur harðar. Það er ei um þjóðarhag, sem þingfulltrúa varðar. St. J. Er eitthvað að? Hvernig dettur fólki í hug að efna til skemmtunar án þess að hafa ,,bingó“? Er til of mikils mælst, að það fólk, sem af hinni vel menntuðu og framsæknu stétt símafólks er treyst til að sjá um samkomur þess, geri sér það ljóst, að það er að bera í bakkafullan læk- inn að fá menn til að ausa fróðleik í mannskapinn. Þátt- takan í bókmenntasam- keppni Símablaðsins talar þar t. d. sínu máli. Það hlýtur að liggja í aug- um uppi, að slíkur kjarni hinnar bókmenntaelsku og fróðu íslenzku þjóðar, veit allt, sem er þess virði að vita um Árna Magnússon og Árnasafn. Það má telja víst, að hver símamaður eigi að minnsta kosti eina bók um þetta efni og jafnvel margir, sem unna því svo mjög, að þeir hafi ekki lagt í að fjar- lægja „cellofan“-umbúðirn- ar utan af bókunum, til að forða slíkum dýrgripum frá óhreinindum. Enda kom þetta berlega í ljós föstudagskvöldið 29. nóv. s.l., er skemmtinefnd F.Í.S. lét sér detta í hug að bjóða símafólki upp á slíka sam- komu. Tæplega sextíu manns létu sjá sig. Nú halda máske einhverj- ir að þetta stafi af því að komið var að lokum mánað- ar og fólk væri ekki á þeim buxunum að fara út og skemmta sér. Nei, ónei, það var borgað út þennan dag og nýlega hafa símafólki hlotn- ast miklar lagfæringar á launum sínum, enda vitnað- ist eftir á, að mjög margt símafólk var að skemmta sér á hinum ýmsu skemmtistöð- um borgarinnar, þetta sama kvöld. I alvöru talað: Eru síma- menn og konur orðnir þeir félagsamlóðar, að ekki sé hægt, endrum og eins, að hóa saman svo stórum hópi þeirra, til að skemta sér, að sæmilegt megi teljast. Ég öfunda ekki það fólk, skemmtinefndina. sem tekið hefur að sér, já, skikkað til þess af samstarfsfólki sínu, að gera tilraunir til að hóa símafólki saman til að skemmta sér í sinn hóp. Ég þakka nefndinni fyrir henn- ar starf og dáist að kjarki hennar, að þora að leggja út í tilraun til menningarauka innan stéttarinnar. Ég vona að þetta fólk láti ekki hugfallast við einn ó- sigur. „Bingó“ getur verið gott með öðru, en það væri hörmulegt, ef það og annað slíkt, ætti eftir að dóminera á öllum okkar samkomum. Eða hafa símamenn kannske látið sér hugkvæmast, að breyta allri sinni félagsstarf- semi í „bingó“-form. Það væri skemmtun út af fyrir sig, að vera viðstaddur kjör stjórnar og annarra í „bingó“-formi. Kannske er það framtíðin? Hvernig var þetta á „Gull- öld“ félagsins? Hvernig væri að rifja það upp á einhvern hátt? 1. des. 1963. H. Erlendsson. 36 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.