Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 48

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 48
fyrir hinar frábæru móttök- ur að Flúðum. Margar visur urðu til í ferðunum, misjafnlega góðar og munu þær öðruhverju sjást á síðum Símablaðsins. Tilefni þeirra voru að sjálf- sögðu margvísleg, en of langt mál yrði að gera þeim hlut- um skil. Hér eru nokkrar: Yfir sveitir ýmsar fer alltaf nýtt við tekur, þegar hinn sæli símaher suðurlandið ekur. □ Þær munu lýsa leið og veg lundin rís og hlýnar. Símans skvísum eigna ég allar vísur mínar. □ Sigmundur með ljóð og lag lék á þýða strengi. Hann hefur sprett úr spori í dag spilað vel og lengi. □ Allir hressir, engir slakir enda gengur flest í hag. Ofurlítið innanrakir, eftir þennan langa dag. Skemmtinefndin. ÍMtill korn Kaupmaður nokkur hafði glerker á skrifstofuborðinu með syndandi fiski í. Eitt sinn spurði einn starfs- maðurinn, hvort hann hefði gaman af Jifandi fiskum. Onei — sagði hann, en mér finnst það tilbreyting að horfa á lifandi veru, sem getur opnað kjaft, án þess að stagast á launahækkun. n Vel metin skrifstofustúlka hafði sótt tvisvar um stöðu á annari skrifstofu í sömu stofnun, sem var opinbert fyrirtæki. í fyrsta skiptið fékk sonur skrifstofustjór- ans stöðuna, en í annað skiptið dóttir hans. Nokkru síðar kemur hún inn á þessa skrifstofu og sér þá, að yngri dóttirin er einnig komin þangað. Hún vindur sér að þeirri nýkomu og segir: ,,Hvenær byrjar amma þín að vinna hérna?“ □ Saga þessi er sögð um Skagfirðing, sem nú er lands- frægur listamaður, og Ey- firzkan bónda: Skagfirðing- urinn var fram á fullorðins- aldur búðarmaður á Akur- eyri. Inn í búðina kom haust eitt bóndi innan úr Eyjafirði, sem orð fór af, að oft setti á vetur af óforsjálni. Búðarmaður vatt sér að honum illkvittnislegur og sagði: „Hvað heldurðu að þú fellir nú margar rollur úr hor í vetur?“ Bónda brá ekki,, en svaraði með ekki minni illkvittni á vörunum: „Langar þig nú í ket af hordauðu, — og þú, sem ert Skagfirðingur.“ Ef við værum gallalaus, þá myndum við ekki sífellt vera að leita að misbrestum í fari annarra. □ Flestir kvarta yfir lélegu minni, en engir yfir lélegri dómgreind. □ MÆND í KITLER En mand kan gá i hvid eller grá kittel og han kan ha’ en stor eller lille titel. Men det er ikke manden i kitlen, eller manden med titlen, man skal se pá. Det er hjertet bag kitlen og hjernen bag titlen, det kommer an pá. E. U. J. □ Það mun vera dálítið erfitt að þýða þessa snjöllu vísu svo vel fari, en Símablaðið væntir þess, að einhverjir af lesendum þess leysi þann vanda, og sendi því snjallar þýðingar. □ Það er jafn auðvelt að blekkja sjálfan sig án þess að verða sér þess meðvitandi, eins og það er erfitt að blekkja aðra. 5ÍMAB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.