Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 49

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 49
Fréttir Ný símaskrá 1964, kom út á árinu, sú stærsta, sem út hefur verið gefin. Er hún 416 blaðsíður, auk gjald- skrár. í hana fóru 50 tonn af pappír, enda varð útgáfu- kostnaður um þrjár milljón- ir króna. 1. október s.l. gekk í gildi ný gjaldskrá fyrir póst og síma. • Til fróðleiks skulu hér nefnd nokkur dæmi um árs- fjórðungsgjald heimilissíma með 600 símtölum í nokkr- um löndum: ísland Noregur Finnland Svíþjóð Danmörk Bretland Þýzkaland Frakkland kr. 640.00 1.103.00 657.00 580.00 743.00 1.170.00 1.420.00 1.670.00 • Ný fröken klukka var tek- in í notkun 13. júlí s.l. Inn á hana talaði frú Sigríður Hagalín leikkona. • Friðþjófur Pálson síma- og póstafgreiðslumaður á Húsa- vík hætti störfum þar 1. okt. s.l. og fluttist til Reykjavík- ur og vinnur nú við endur- skoðun í Hagdeild. • Þórunn Sigurðardóttir síma- og póstafgreiðslukona á Patreksfirði hætti þar einn- ig störfum 10. okt. s.l. og vinnur nú við endurskoðun í Hagdeild. Verkfræðingarnir eru nú sem óðast að koma af fjöll- um. Sæmundur Oskarson, Þor- varður Jónson, Haraldur Sig- urðsson og Ólafur Tómasson munu vera ráðnir á ný, — og verða framvegis opinber- ir starfsmenn í stað þess, að áður voru þeir ráðnir skv. lögum stéttarfélags verk- fræðinga, sem fór með mál þeirra. — Væntanlega ganga þeir nú í F.Í.S. og setja þar ,,svip á bæinn“. Símablaðið býður þá vel- komna heim. • Miklar framkvæmdir hafa verið á s.l. ári í húsbygging- um fyrir póst og síma víðs- vegar um land. Lokið var við viðbótar- byggingu á Akureyri og Raufarhöfn, og unnið hefur verið að bygingu nýrra húsa á Siglufirði, Flateyri, Kópa- vigi og Þórshöfn. En ekki bólar á því, að hafizt sé handa um viðbótar- byggingu við símahúsið í Thorvaldsensstræti. — Þó brýna nauðsyn beri til að henni sé flýtt. Aftur á móti var á árinu leigt húsnæði fyrir ýmsa starfsemi á Klapparstíg 26 t. d. hefur fjarveruskráning- in verið flutt, merkjasala og endurskoðun póstávísana. — Við það hefur húsnæði nokk- uð rýmkazt á 5. hæð Lands- símahússins í Thorvaldsens- stræti og víðar. • Á árinu voru opnaðar sjálfvirkarsímstöðvar í Kópa- vogi og Vestmannaeyjum. Lokið var lagningu hins nýja sæsímastrengs frá ís- landi um Grænland til Ame- ríku (Ice Can). • í árslok yfirtekur Lands- síminn öll tæknimál Ríkis- útvarpsins, og fylgja þar með flestir þeir starfsmenn, sem við þau hafa unnið hjá útvarpinu. — Vonandi verð- ur það eitt fyrsta viðfangs- efni símaverkfræðinganna, að finna upp tekniska mögu- leika til að útiloka, að hægt sé að útvarpa þeim djöful- skap, sem flætt hefur inn á íslenzk heimili í „nýtízku“ hljómlist, um nokkurt skeið. • Stórmerkilegur vísir að íslenzku símasafni er nú í vörzlu Bæjarsímans, — en sem kunnugt er, átti Eyjólf- ur sálugi Þórðarson það, — og lagði mikla rækt við söfn- un minjagripa. Aftur hefur lítið farið fyrir þeim áhuga meðal teknískra yfirmanna stofnunarinnar. • Bæjarsíminn hefur nú komið sér upp myndarlegum vísi að teknísku bókasafni. • Hvenær verður Mikla- Norræna styrkurinn auglýst- ur til umsóknar, eða ber ekki að gera það? Símritari. SÍMABLAÐIÐ er gefið út af Félagi ísl. símamanna. Ritstjóri: A. G. Þormar. Meðritstjóri: Ingólfur Einarsson. Auglýsingastjóri: Júlíus Pálsson. Félagsprentsmiðjan. SÍMABLA'ÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.