Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2006 Fréttir DV Kosið í Eurovision Síminn og fyrirtækið Basecamp hafa gert með sér samkomúlag um að Síminn annist símakosningu vegna Söngvakeppni Sjónvarpsins 2006 þar sem valið verður framlag íslands i Söngva- keppni evrópskra sjónvarps- stöðva (Evrovision) í Aþenu í maí. Basecamp annast allan undirbúning og framkvæmd vegna Söngvakeppni Sjón- varpsins í ár. Að þessu sinni velur þjóðin milli 24 laga en lögin verða kynnt í beinum útsendingum, átta lög í senn. Símalaus gæsla Skrifstofur Landhelgis- gæslunnar urðu símasam- bandslausar í gær. Síma- strengur inn á skrifstofurn- ar, sem eru við Seljaveg, var slitinn við vegafram- kvæmdir í Holtsgötu um fjögurleytið. Flestir símar gæslunnar urðu sambands- lausir í kjölfarið. Fljótt var brugðist við og viðgerðar- hópur sendur á staðinn. Myndlistar- gagnrýni Kolbrá Bragadóttir, myndlistarmaður „Staðan gæti verið betri. Oftar en ekki eru myndlistarmenn sjálfir að gagnrýna og þetta er lítið land og auðvelt að móðga. Myndlistarmenninrnir veröa líka að geta tekið gagn- rýninni. Gagnrýnin færlíka of lítið pláss í fjölmiðlum. Það er eitthvað sem fjölmiðlarnir þurfa að taka til greina frekar en gagnrýnendurnir." Hann segir / Hún segir J fyrsta lagi er ekki hægt að kalla þetta gagnrýni og stað- an fer versnandi með árunum. Það er kannski ekki við gagnrýnandann sjálfan að sakast heldur frekar plássleys- ið sem gagnrýnin fær í fjöl- miðlum. Það er frekar að um sé að ræða almenna umfjöllun um myndlist óháð gagnrýni." Daníel Bjömsson, myndlistarmaOur. Húðflúrarinn Sverrir Þór Einarsson segir væntanlega viðskiptavini húðflúr- stofunnar House of Pain, sem hann hyggst opna innan skamms, ekki vera að styrkja skipulagða glæpastarfsemi fái þeir sér húðflúr hjá honum. Stof- an er engu að síður hluti af keðju húðflúrstofa í eigu Hells Angels-mótor- hjólasamtakanna. Alþjóðadeild Ríkislögreglustjórans er á varðbergi gagn- vart samtökunum og vill ekki sjá þau hér á landi. Yfirvöld fylgjast með Smári Sigurðsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra, segir að vel sé fylgst með Hells Angels svo sam- tökin nái ekki fótfestu hér á landi. Ríkislögreglustjóri á í samstarfl við lögregluembætti og yflrvöld á Norðurlöndunum vegna þessa. „Þessi samtök hafa verið sér- staklega áberandi í Danmörku. Við höfum verið á verði og verðum það áfram. Það er full ástæða til þess,“ segir Smári. andri@dv.is Jón Trausti Lúthersson Lögreglan tókl taumana þegar hópurafmeðlimum Hells Angels kom til landsins I lok árs 2004. „Jú, það er rétt. Ég þurfti leyfi frá Danmörku til að nota þetta nafn,“ segir Sverrir Þór Einarsson sem hyggst á næstunni opna húðflúrstofuna House of Pain á Laugavegi. House of Pain er húðflúrstofukeðja sem í Skandinavíu hefur lengi ver- ið bendluð við mótorhjólasamtökin Hells Angels. Að sögn Sverris vantar aðeins samþykkt heilbrigðiseftirlitsins svo að hægt sé að hefja starfsemi stofunnar. „Jú, þetta tengist nú eitthvað Hells Angels," segir Sverrir Þór, spurður hvort rétt sé að mótor- hjólasamtökin alræmdu tengist húðflúrstofu hans. Sverrir gat þó hvorki, né vildi, útskýra nánar í hverju þessi tengsl eru fólgin. Hann segist þó hvorki tifheyra samtökunum sjálfur né geri aðrir íslendingar það. Aðspurður hvort væntanlegir viðskiptavinir hans muni styrkja skipulagða glæpa- starfsemi fái þeir sér húðflúr hjá „Jú, þetta tengist nú eitthvað Hells Angels." House of Pain svarar Sverrir: „Nei, nei. Það er af og frá.“ Bendluð við vændi og dóp Mótorhjólasamtökin Hells Angels í Skandinavíu hafi í gegn- um tíðina verið bendluð við ýmsa starfsemi, löglega sem og ólöglega. Mest hefur borið á ásökunum um að samtökin séu viðriðin vændis- hringi og fíkniefnasölu, en því neita forsvarsmenn þeirra alfarið. Annars konar atvinnustarfsemi sverja samtökin þó ekki af sér. Þar má til dæmis nefna fataverslanirn- ar Route 81, sem selja fatnað með Hells Angels-slagorðinu Support 81 og húðflúrstofurnar House of Pain. Rússneska rétttrúnaðarkirkjan fær loforð frá borgarstjóra Heldur kirkjulóð í Leynimýri Trúfélag rússnesku rétttrúnaðar- kirkjunnar á íslandi held- ur áfram vil- yrði sem v Reykjavíkur- umKw borg hafði gefið söfnuðinum fyrir lóð í Leynimýri í öskjuhlíð. „Reykjavíkurborg fagnar áhuga Trúfélags rússnesku rétttrúnaðar- kirkjunnar á íslandi á því að reisa kirkjubyggingu í Reykjavík," segir í bréfi Steinunnar Val- dísar Óskarsdóttur borgarstjóra til Tímofeí Zolotúskí safnaðarprests. Steinunn Valdís Óskars- dóttir Framlengdi lóðafyrir- heit til rússnesku rétttrúnaðar- kirkjunnar um eitt ár. „Sem kunnugt er gaf borgarráð Söfnuði Moskvu-Patríarksins vilyrði fyrir lóðarúthlutun 2. desember 2004 í Leynimýri við Öskjuhlíð, með fyrirvara um samþykkt deiliskipu- lags. Vilyrðið var tímabundið til árs- loka 2005," segir nánar í bréfi borg- arstjóra. Þar kemur einnig fram að í viðræðum Reykjavíkurborgar og rússneska söfnuðarins hafi aðrar lóðir einnig komið til skoðunar: Patríarki heiörar forseta Islands vegna baráttu fyrir rússneskri kirkju i Reykjavik Ólafur Ragnar fær rússneska orðu Forsetaorða ÓlafurRagnar Grímsson, forseti Islands, fékk orðu heilags Valdimars konungs frá rússneska patríarkanum Aiexíj fyrirliðsinni við rússneska söfnuðinn. DV 1. mars 2005 „Enn er verið að kanna hvaða staðsetning gæti best þjónað bæði kirkjunni og íbúum Reykjavíkur og á meðan á þeirri skoðun stendur er fýrrnefnt vilyrði fyrir lóðarúthlutun góðfúslega framlengt til ársloka 2006."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.