Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 17.JANÚAR2006 Fréttír DV Stútur undir stýri Helgin var róleg í um- dæmi lögreglunnar á Álfta- nesi, í Garðabæ og Hafnar- firði að því er fram kemur á vef Vfkurffétta. Lítið bar á ölvun og samkomur virtust fara fram með friði og spekt. Átta umferðaróhöpp voru tilkynnt, öll slysalaus, og fjórir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur. Einn af þeim hafði lent í umferðar- óhappi. Þá hafði lögreglan afskipti af sjö ökumönnum vegna umferðarlagabrota, þar af þremur vegna hraðaksturs. Rannsaka flóðahættu Rannsaka á frekar en gert hefur verið flóðahættu á svæðinu milli núverandi byggðar á Eyr- arbakka og þjóðvegarins. Vill bæjarstjóm Árborgar gera þetta með tilliti til þess hvort betur megi nýta svæðið. Ljúka á rannsókn- um tímanlega fyrir næstu endurskoðun aðalskipu- lagsáætlunarinnar. „Bæjar- stjóm samþykkir ennfrem- ur að leggja áherslu á að skipulagið verði fram- kvæmt þannig að uppbygg- ing þegar deiliskipulagðra svæða og svæða í norð- urjaðri núverandi byggðar hafi forgang gagnvart upp- byggingu á nýjum svæðum vestast í þorpinu." fæl un en un Alls var 3.651 nemandi í grunnskólum Hafnaríjarðar í lok síðasta árs, eða um 16% fbúa. Almennir bekkir í grunnskólunum öllum vom 175 að tölu og meðalfjöldi nemenda í bekk var 20,9 en sama tala haustið áður var 21,3. Þetta kemur fram í nýjasta tölu- blaði Skólavefritsins og birt á vef Vfkurffétta. Þar kemur einnig fram að nemendum fækkaði um fimm ffá síðasta skólaári þrátt fyrir talsverða fólksfjölgun í bænum. Karlstripparinn Charles Róbert Onken, eða „Bad Boy“ Charlie eins og hann hefur stundum verið kallaður, virðist hneigjast til ofbeldis. Tvær kærur á hendur honum vegna líkamsárásar eru nú í dómskerfinu og fyrir þremur árum gekk hann í skrokk á fyrrverandi fósturföður sínum. Sá kærði en tap- aði þrátt fyrir játningu Charlies. „Bad Boy" Mie lamdi „Ég sá þá koma og bað sjúka konu sem var með mér að fara inn í herbergi svo ekkert kæmi fyrir hana,“ segir Kristinn Rúnar Hart- mannsson sem lenti í Charlie þegar hann ásamt öðrum manni gekk í skrokk á Kristni á Sólheimum þar sem hann vann við kerta- gerð. Charlie reyndi að neyða Kristin til að skrifa undir skuldayfir- lýsingu gagnvart fyrrverandi konu sinni og móður Charlies en Kristinn, sem er á fimmtugsaldri, neitaði staðfastlega. Ég öskraði og hljóð- „Þeir brutu rifbein í mér og brákuðu fingur og fleira," segir Kristinn um óþægilega heimsókn sem hann fék frá Bad Boy Charlie. Að sögn Kristins á Charlie ásamt öðrum að hafa ruðst inn og reynt að neyða hann til að skrifa undir skuldayfirlýsingu gagnvart fyrr- verandi konu sinni og móður Charlies. Kristinn segir að hann hafi neitað allan tímann þrátt fyrir hótanir og uppskorið reiði Charl- ies sem gekk í skrokk á honum í kjölfarið. Hótuðu dauða „Ég öskraði og hljóðaði á gólf- inu til þess að fá þá til að hætta," segir Kristinn en hann og konan sem faldi sig inni í herbergi voru ein í húsinu og því enginn mögu- leiki á að hjálp bærist. Kristinn segir að það hafi bjargað honum að hljóða á gólfinu því Charlie og hinn maðurinn hættu fljótlega eft- ir það. aði á gólfmu tilþess að fá þá til að hætta." „Þeir hótuðu að drepa mig ef ég myndi segja einhverjum frá þessu," segir Kristinn en eftir bar- smíðamar höfðu þeir í hótunum við hann og hurfu svo á brott. Fyrirgefur fyrrverandi konu sinni „Nokkrum mínútum eftir að þeir gengu í skrokk á mér fékk ég símtal frá fyrrverandi konunni minni sem sagði að þetta væri bara byijunin," segir Kristinn en áréttar samt sem áður að hann sé ekki reiður við hana. Kristinn segir að sér þyki vænt um þann tíma sem hann eyddi með móður Charlies og erfi ekki atvikið við hana en hann kærði Charlie samt sem áður í kjölfarið. Bad Boy Charlie Lúbarði fímmtug- an mann Sólheimar Kristinn Rúnar Hartmannsson ann við kertagerð á Sólheimum Sýknaður „Þeir sýknuðu Charlie þrátt fyr- ir að hann hefði játað," segir Krist- inn en mál hans fór fyrir héraðs- dóm þar sem Charlie var sýknað- ur. Kristinn segist ekki hafa getað sannað að annar maður hefði ver- ið að verki með Charlie og því ekki getað sýnt fram á hver hafi veitt honum hvaða högg. Kristinn segist vera afar ósáttur við dóminn enda segir hann að Charlie hafi játað brot sitt en samt verið sýknaður og getur ekki skilið réttlætið í því. Eitt mái fyrir dómi Charlie var nýverið ákærður fyrir tvær líkamsárásir og eru þær kærur nú til meðferðar í Héraðs- dómi Reykjavikur. Charlie er gefið að sök að hafa gefið manni hnefa- högg í andlitið með þeim afleið- ingum að hann féll aftur fyrir sig, höfuð hans skall í gangstétt og hlaut maðurinn talsverðan skaða í kjölfarið. Einnig er hann ákærður fyrir að hafa gefið öðrum manni sama kvöld hnefahögg þannig að maðurinn nefbrotnaði. vaiur@dv.is staðan er i dag hérna i Vestmannaeyj- um,“segirJón Pétursson sál- fræðingur í Vestmannaeyjum. „Ég heid að það sé bara víöa á landinu þannig ástand. Mann- lífið gengur bara sinn vana- gang. Fólk hér bíður bara eftir ioðnunni og menn eru spennt- ir og vonast til þess að hlutirn- ir fari að snúast hraðar en þeir geraídag." Steingrímur Sigurðsson strætisvagnabílstjóri vill símenntunarnámskeið Vagnstjórar þurfa endurmenntun Mikil umræða hefur skapast um öryggi strætisvagnabflstjóra eftir að einn þeirra lést í hörðum árekstri á Sundabrautinni á föstu- daginn. Ekki er langt síðan Bjöm Hafsteinsson missti báða fætur í öðrum árekstri. Bjöm sagði í sam- tali við DV í gær að hann teldi mjög mikilvægt að vagnstjórar og farþegar yrðu skyldaðir til að nota bflbelti en engar slíkar kvaðir em til stað- ar í dag. Vagnstjórinn Steingrímur Sigurðsson hefur miklar áhyggjur af þessum málum og sagðist oft hafa verið nálægt að lenda í því sem varð vagnstjóranum að aldurtila á föstu- daginn. „Það er afskaplega slæmt þegar strætisvagn og tengivagn lenda sam- an hlið við hlið. Báðir rása þeir mikið að aftan og það er oft mjög erfitt að keyra slíka bfla. Það erljóstaðþað má lítið út af bregða," sagði Steingrímur og bætti við að hann vildi að lagt væri meira upp úr sí- menntun bflstjóra. „Ég ætla að koma af stað sí- menntunamám- skeiði og vonast til að fá Rfldslögreglu- stjóra í lið með mér. Það er ekki auðvelt að aka þessum stóm bflum og í raun hlægiiegt að ekkert sé gert til að fríska menn við eftir að þeir fá meirapróf. Ég er búinn með bók sem ég vonast til að hægt sé Hrikalegt slys Vagnstjóri lést Iárekstri á föstudaginn. að nota sem beinagrind fyrir slíkt námskeið. Það hefur margt breyst á undanförnum ámm. Hraðinn í um- ferðinni er orðinn meiri, bílarnir fleiri og fullkomnari. Það er að mörgu að hyggja þegar kemur að því að aka svona bflum," sagði Steingrímur sem á að baki rúmlega 40 ára starf í björg- unarsveitum auk þess sem hann hef- ur unnið sem vagnstjóri í tólf ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.