Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2006 Sport DV Unnu tvo sigra á Serbum Danska handboltalands- liðið sem er með fslandi í riðli á EM vann tvo sigra á tveimur landsliðum Serbíu og Svartfjallalands í Belgrad um helgina en Serbar eru einnig með ísiandi og Dan- mörku i riðli. Danir unnu fyrst A-landsliðið með sjö marka mun, 31-24, fyrir framan troðfulla 5000 manna höll og seinni leik- urinn vannst síðan með einu marki gegn unglinga- liði Serba, svokölluðu ólympíuliði sem er ætlað stóra hluti á komandi ólympíuleikum í Peking 2008. Bætti marka- metið hans Erik Veje Horn- maðurinn Lars Christian- sen er orð- inn markahæsti leikmaður danska landsliðsins frá upphafi en hann bætti markamet Erik Veje Rasmussen með þvf að skora átta mörk í 28-27 sigri Dana á ólympíuliði Serbíu og Svartfjallalands. Christi- ansen, sem leikur með Flensborg í Þýskalandi, hef- ur skorað 1020 mörk í 212 landsleikjum en Erik Veje skoraði 1015 mörk í 233 landsleikjum á sínum tíma. Christiansen lék sinn fyrsta landsleik árið 1992. Alda Leif með 22 stig Alda Leif Jóns- dóttir, landsliðs- kona og leikmað- ur með hollenska körfuboltaliðinu Den Helder, skor- aði 22 stig í ör- uggum sigri Den Helder á Wildcats MagiXX, 100-62, íhollensku úrvalsdeildinni en Alda Leif og félagar eru þar með komnar með sex stiga for- skot en þær hafa unnið alla tíu deildarleiki sína í vetur. Den Helder varð í 2. sæti í deildarbikarnum á dögun- um. Jón Arnór að hitta vel Jón Arnór og félagar hans í Carpisa Napoli hafa nú unnið tjóra leiki í röð í ítölsku A-deildinni og eru nú í 2. sæti með 12 sigra í 16 leikjum. Jón Arnór hefur verið að hitta sérstaklega vel í sigurgöng- unni en hann hefur skorað 11,5 stig að meðaltali í leikjunum Qórum. Jón Arnór hefur nýtt 66,7% skota sinna (18 af 27) í þeim, þar af 8 af 13 þriggja stiga skotum sín- um (61,5%). Afríkukeppni landsliða hefst i Egyptalandi í næstu viku en hún fer fram á sama tima og keppnistimabil félagsliðanna stendur yfir. Afriskir landsliðs- menn „skrópa“ því úr vinnunni næstu þrjár vikurnar. fer nú fram í 25. sinn en hefur líklega aldrei haft jafn mikil áhrif á evrópska knattspyrnu og einmitt nú. Áfrískir leikmenn hafa unnið sér sæti í fremstu knattspyrnuliðum Evrópu á síðustu árum og brotthvarf þeirra kemur því mörgum liðanna afar illa en Afríku- keppnin stendur frá 20. janúar til 10. febrúar. Enska úrvalsdeildin er engin undantekn- , ing en þetta bitnar misjafnlega á liðunum. Bolton og Portsmouth missa bæði lykil- 6 menn en Manchester United og Liverpool eru tvö af átta liðum deildarinnar sem ^ ekki eiga neinn fulltrúa í Egyptalandi næstu þrjár vikur. Tímasetning Afríkukeppni landsliða hefur alltaf verið mUli tannanna á ráðamönnum í fót- boltaheiminum. Þar sem þróunin hefur verið þannig að fleiri og fleiri afrískir knattspymumenn hafa fundið sér samastað hjá sterkum evrópskum knattspymuliðum hefur fjarvera þeirra í þær þrjár vikur sem Afríkukeppnin stendur yfir alltaf meiri og meiri áhrif. Árið 1998 vom aðeins þrír afrískir landsliðsmenn í ensku úrvalsdeildinni en sú tala hefur sjöfaldast á tæpum áratug. Forráðamenn Afríska knattspyrnusambandsins (CAF) standa samt fast á sínu og segja keppnina og tímasetn- ingu hennar nauðsynlega fyrir uppgang knatt- spyrnunnar í Afríku, bæði fjárhagslega sem og knattspymunnar sjálfrar vegna. Á tveggja ára fresti Keppnin er haldin á tveggja ára fresti en aftur á móti er Evrópukeppni landsliða á fjögurra ára fresti og Asíukeppnin og Suður-Ameríkukeppnin báðar á þriggja ára fresti. Mörgum þykir þetta of mikið ekki síst þar sem keppnin hefur þetta mikil áhrif á evrópsk knattspyrnulið. Rök CAF em hins vegar þau að með þessum hætti fái fleiri þjóðir tækifæri til að halda keppnina sem kallar á betra innra skipulag. Missir fjóra sterka ieikmenn Það em þó ekki öll liðin í ensku úrvalsdeildinni sem þurfa að. hafa áhyggjur, því átta af 20 liðum hafa engan afrískan landsliðsleikmann. Meðal þeirra eru lið Manchester United og Liverpool en það eru einkum tvö lið sem em ívondum málum, Bolton og Portsmouth. Bolton missir fjóra leik- menn og keppnin veikir leikmannahóp Sams Allardyce mikið. Abdoulaye Faye og El-Hadji Diouf voru báðir valdir í hóp Senegala, Radhi Jaidi spilar fyrir Túnis og þá er Jay-Jay Okocha fyrirliði nígeríska landsliðsins. Bolton er enn með í bik- arnum auk þess að vera að berjast um Evrópusæti og því er öruggt að fjarvera þessara manna getur haft afdrifaríkar afleiðingar iýrir útkomuna í vor. Annar stjóri með miklar áhyggjur er Harry Redknapp hjá Portsmouth. Reyndar bjó hann til vandamálið sjálfur með því að næla í tvo afríska landsliðsmenn eftir að hann tók við af Alain Perr- in í lok nóvember. Redknapp fékk þá Benjani Mwamwari frá Zimbabwe og Lomano LuaLua frá Kongó til sín í Portsmouth á dögunum en auk þeirra verður framherji Zambíu, Collins Ntofont- ofo Mbesuma, ekki með Portsmouth næstu vikur. Án tveggja sterkra manna Arsenal og Chelsea missa hvomgt marga menn en missa þó bæði toppleikmann. Arsenal verður þannig án Kolos Touré og Chelsea án Didiers Drogba sem em lfldegir til að hjálpa Fflabeins- ströndinni að vinna Afríkukeppni landsliða í ann- að sinn og í fyrsta sinn í 14 ár. Annar sterkur leik- maður Chelsea, Ganamaðurinn Mickaél Essien, er meiddur og nýtist því hvorki liði Chelsea né Gana næstu vikurnar. Flestir leikmenn frá Senegal Aðrir sterkir leikmenn sem hverfa á brott úr ensku úrvalsdeildinni næstu vikurnar em Mar- okkómaðurinn Noureddine Naybet og Egyptinn Mido sem báðir spila með Tottenham, Everton- maðurinn Joseph Yobo og framherji West Brom- wich, Nwankwo Kanu, sem báðir spila fýrir Níger- íu og þá má ekki gleyma Senegölunum Diomansy Tottenham 2 Mido (Egyptaland) Noureddine Naybet (Marokkó) Aston Villa 11 Eric Djemba Djemba (Kamerún) Everton í Joseph Yobo (Nígería) Newcastle 1 Amdy Moustapha Faye (Senegal) Fulham 1 Pape Bouba Diop (Senegal) Wigan 1 Henri Camara (Senegal) Manchester United, Liverpool, Middles- brough, Blackburn, Manchester City, West Ham, Birmingham og Sunderland eiga ekki fulltrúa í Afríku- keppninni í ár. West Bromwich 2 Nwankwo Kanu (Nígería) Diomansy Camara (Senegal) Charlton 1 Talal Karkouri (Marokkó) iðSPBMtSSSm1 ( Bolton 4 Abdoulaye Faye (Senegal) El-Hadji Ðiouf (Senegal) Radhi Jaidi (Túnis) Jay-Jay Okocha (Nígería) Portsmouth 3 Benjani Mwaruwari (Zimbabwe) Lomano LuaLua (Kongó) Collins Ntofontofo Mbesuma (Zambiá) Chelsea 3 Didier Drogba (Filabeinsströndin) Geremi (Kamerún) Mickaél Essien (Gana) - meiddur Arsenal 2 KoloTouré (Fílabeinsströndin) Emmanuel Eboué (Fílabeinsströndin) f Faye (Newcastle), Pape Bouba Diop (Fulham) og Henri Camara (Wigan). Senegal á flesta leik- menn í ensku úrvalsdeild- inni af afrísku landsliðun- um, eða alls sex úr fimm liðum. -----------r Ætm barí^h^f a'lirJn*"nimir mínlt farið? Sam Allardyce, stjóri Bolton

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.