Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2006, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2006, Page 8
8 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Frítt fyrir alla Bæjarstjóm Sandgerðis- bæjar samþykkti rausnar- lega tillögu nú á dögunum. Þannig er mál með vexti að íbúar Sandgerðisbæjar fá, vegna tillögunnar, frítt í sund. Það skiptir ekki máli hvort um ræðir konur eða karla því það er frítt fyrir alla. Þessi fríi aðgangur er þó um óákveðinn tíma eða þar til henni verð- ur lokað vegna byggingar- framkvæmda, það er stækkun á íþróttamiðstöð og sundlaug. Þróun í Grundarfirði Menntamálaráðuneytið stendur fyrir UT2006 - ráð- stefnu um þróun í skóla- starfi, föstudaginn 3. mars 2006. Ráðstefnan er haldin í Fjölbrautaskóla Snæfell- inga í Grundarfirði. Á UT2006 er áhersla lögð á sveigjanlega kennsluhætti. Ráðstefnugestir verða virkir þátttakendur í dagskránni og formlegir fyrirlestrar verða í lágmarki. Skipulag ráðstefnunnar er með ný- stárlegum hætti og gefur fólki færi á að taka þátt í áhugaverðri og spennandi uppbyggingu skólastarfs á fslandi. „Nú er Konu- og karlakvöldið, sem við á FM 957 erum með í kvöld,aðala triðið," segir Sig- valdi Kaldalóns -Svali á FM 957.„Svo erum við að byrja aftur með Hlustaðu á hljóðið Hvað liggur á? orugg- lega vinsælasti útvarpsleikur á ís- landi. Við ætlum að gefa tals- verðar fjárhæðir; síðast gáf- um við alls milljón. Einnig erum við að undirbúa aug- lýsingaherferð. Við ætlum að fríska upp á stöðina og lóg- /ð." Reykjavíkurborg er í vanda með að finna kvenkyns vaktmenn á Núllið; almennings- salernin sem hafa verið neðst í Bankastrætinu í nær átta áratugi. Helgi Kárason hef- ur staðið vaktina á Núllinu í sjö ár. Helgi segir ástandið óviðunandi, of mikið álag sé á starfsmönnum sem þurfi að vinna nánast alla daga ársins. Baldur Einarsson, deild- arstjóri hjá borginni, segir illa ganga að finna fólk til að standa vaktina. Salernisvörðurinn Helgi Kárason stendur vaktina karlamegin og segir ástandið í starfs- S mannamálum ekki gott. „Okkyr vantaf | starfsmefín o< Éelstþarfþað al vejra kvenmaðurf llis Almenningssalernin neðst í Bankastrætinu, á Núllinu, hafa fylgt Reykvíkingum síðan 1930. Salernisverðir á Núllinu eru ósáttir við að enginn virðist fást til að gegna sömu störfum og þeir og vegna þess þurfa þeir til að mynda að vinna flesta daga ársins. Salernin eru kynjaskipt og athygli vekur að karlmaður hefur staðið vaktina kvennamegin síðastliðið hálft ár. „Þetta er ekki gott ástand,“ segir Helgi Kárason, salernisvörður á Núllinu í Bankastræti. Helgi hefur unnið á Núllinu frá árinu 1999 og segir álagið síðasta hálfa árið hafa verið allt of mikið. Síðasta sumar hætti eini kvenmað- urinn sem starfaði á Núllinu og hafa karlmennirnir þurft að ganga í hennar störf. Tvo starfsmenn vantar til viðbótar við þá fjóra sem eru fast- ráðnir salernisverðir þar nú. Karl vaktar kvennamegin Helgi segir að kvenkyns gestir á salernunum hafi kvartað undan því að karlmaður standi vaktina kvennamegin á Núllinu. „Það vantar hér kvenkyns starfsmánn. Við erum að vinna hér alla þá daga sem er opið og fáum sjaldan frí,“ segir hann og bætir við að skrýtið sé að fáir sæki um störfin. Starfið felur í sér að þrífa, opna salerni og vera til staðar fyrir gesti. Unnið er vaktavinnu, tvo daga aðra vikuna og fimm daga hina. Vinnu- dagurinn er frá átta á morgnana til sex á kvöldin auk næturvakta um helgar. „Þetta er mjög fínt „djobb" sem hentar öllum. Næturvaktirnar rnyndu henta skólafólki sérstaklega vel,“ segir Helgi. Þarf helst að vera kvenmaður \ Baldur Einarsson, deildarstjóri hjá framkvæmdasviði Reykjavílair- borgar, kannast við vandamálið: „Það gengur illa að fólk og það er verið að leita að mannskap til að Núllinu sem gegnt hefur hlutverki sínu í marga áratugi. Ný kynslóð al- menningssalerna hefur skotið upp kollinum í miðbænum þar sem fólki er gert að greiða fyrir salernisferð- ina. Helgi segir að þrátt fyrir hina nýju kynslóð salerna sé Núllið enn þá notað. „Það er íjöldinn allur af fólki sem kemur niður á skálina að pissa og því er nauðsynlegt að halda þessu opnu,“ segir Helgi Kárason salernis- vörður - karlamegin á Núllinu. gudmundur@dv.is Karlaveldi Karlar sinna störf- um beggja kynja á Núllinu I Bankastræti. Engin kona vill vakta kvennasaiernið og von- ast starfandi saiernisverðir til að fá konu i lið með sér. sinna þessu," segir Baldur og bendir á að ráðningarstofa fari með það verkefni. „Okkur vantar starfsmann og helst þarf það að vera kvenmað- ur,“ segir Baldur. Síðast var starfsmaður ráðinn í haust en hann var karlkyns. „Það hefur verið svolítið álag á þeim þarna og okkur vantar einn til tvo menn í störf. Það gengur erfið- lega," segir Baldur. Fjöldi fólks kemur að pissa Menn hafa löngum velt fyrir sér hvort ekki sé kominn tími á að loka Glæsilegt úrval af handsmíðuðum íslenskum skartgripum /LÁRAÁ SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10 sími 561 1300 Dómur yfir Guðmundi Þórarinssyni sem ofsótti læknaprófessor staðfestur Hæstiréttur heldur Guðmundi á Sogni Hæstiréttur staðfesti á fimmtu- dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Guðmundi Þórarinsson. Hann var í september á síðasta ári dæmd- ur til vistar á Sogni eftir að hafa of- sótt og ráðist á lækni sem fram- kvæmdi fyrir hann barnsfaðernis- rannsókn. I réttarhöldunum yfir Guðmundi var fyrst og fremst deilt um sakhæfi Guðmundar. Verjandi hans, Sveinn Andri Sveinnson, dró í efa það mat dómkvaddra sérfræðinga að Guð- mundur væri haldinn geðsjúkdómi. Vegna þessa mats sálfræðinganna var hann sendur af dómara á Sogn. Hefði verið farið eftir vilja Guð- mundar og verjanda hans hefði Guðmundur verið úrskurðaður sak- hæfur og dæmdur fyrir ofsóknir sín- ar gegn lækninum. Hefði sú verið raunin gengi Guðmundur að öllum líkindum laus í dag. Veikindi hans hafa verið skil- greind af sérfræðingum sem kver- úlanta-paranoia. Hún mun hafa or- sakast af deilu Guðmundar við aðila sem úrskurðuðu að barn sem hann taldi sig eiga væri ekki hans. Guðmundur verður vistaður á Sogni þar til læknar þar telja að hann hafi náð fullum bata af veik- indum sínum. Guðmundur Þórarinsson sat á Litla-Hrauni í fjóra mánuði á meðan málið var rannsakað og rekið fyrir dómstólum en það þyk- ir afar sjaldgæft miðað við umfang þess. Nægir að benda á mál þekktra ofbeld- ismanna sem fara ítrekað með alvarlegum árásum gegn almenningi án þess að sitja í gæsluvarðhaldi á meðan mál þeirra eru rannsökuð. andri@dv.is Guðmundur Þór arinsson Situr áfram nauðugur á Sogni eftir úrskurð Hæstarétts. mk..tssr& I * W1IBBIiíif.fcM*'W®*1WMMWl* KYLDIPROFESSML Segist faðir bants stmhannj ektiw L A VERÖNDINA? 1UR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.