Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2006, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006
Helgarblað DV
Regína Ósk Óskarsdóttir er meö lag í Euru-
vision og er vongóö á gott gengi. Hún sættir
sig þó við að Sylvía Nótt eða einhver annar
vinni enda séu mörg lög góð í keppninni. Hér á
eftir spjallar hún um æsku sína, sönginn,
skilnað við sambýlismann, litlu dóttur sína og
umfram allt gleðina yfir að hafa nóg að gera.
„Ég neita því ekki að ég er
spennt að vinna þessa keppni
enda hef ég farið þrisvar út sem
bakraddasöngkona og veit hvað
það er gaman að taka þátt í
Eurovision og gaman væri að
fara og nú í aðalhlutverkinu,"
segir Regína Ósk og segir enga
ástæðu að draga dul á þá löngun
sína enda sé hún með gott lag
sem sé til alls líklegt.
Eurovision er mál málanna
þessar vikurnar en mikið fjör er í
keppninni og áhugi almennings
mikill. Vandað hefur verið til
verks og mikið lagt í umgjörð
undankeppninnar og lögin vel
unnin. Regína Ósk er ein þeirra
sem sjónir beinast að í kvöld.
Hún hefur vakið athygli fyrir vel
sungið lag og spá margir henni
velgengni í undanúrslitum
keppninnar í sem fram fer í
kvöld.
„Þetta verður spennandi og
ómögulegt að segja til um hvern-
ig þetta fer. Lögin eru svo mörg
og því dreifast atkvæðin. Fólk á
líka erfiðara með að gera upp á
milli laganna þegar þau eru
svona rnörg," bendir hún á og
segist vera vongóð um eigin vel-
gengni.
Get alveg sætt mig við að
Sylvía Nótt vinni
Auðvitað stefnir maður alltaf á sig-
ur en ég geri mér ljóst að ég er ekki ein
um það. Nokkur önnur lög eiga mikla
möguleika og ég gæti alveg sætt mig
við að Sylvía Nótt, Birgitta Haukdal
eða nokkrir aðrir fæm út. Birgitta hef-
ur farið áður og hefur reynsluna. Hún
var okkur til sóma þá og ég veit að
hún yrði það einnig nú. Sylvía kæmi
líka vel út og myndi vekja mikla at-
hygli. Innkoma hennar í und-
ankeppninni var smart og lagið er
flott. Það situr í manni og áður en
maður veit af er maður farin að
söngla það," segir hún og dáist að
Ágústu fyrir hve skemmtilega per-
sónu hún hefur náð að skapa með
Sylvíu.
„Ágústu þekki ég og ég veit að hún
er sniðug stelpa/' segir Regína og vek-
ur athygli á því að tilbúnum persón-
um hafi gengið vel í Eurovision og
nefnir þar norsku strákana sem vom
fulltrúar Noregs í fyrra og kynskipt-
inginn frá ísrael sem bar sigur úr bít-
um fyrir nokkrum árum.
„Það getur ailt gerst í þessu. Ég
vona bara að sigurinn verði sann-
gjam og lagið og flytjandi þess verði
okkur til sóma,“ bætir hún við og seg-
ir spennuna vaxa með hverjum deg-
inum.
Valdi lagið sem ég flyt úr
öðrum lögum
Regína Ósk er önnum kafin
þessa dagana. Hún segir þennan
síðasta mánuð hafa verið anna-
saman sem sé öndvert við það sem
alla jafna gerist á þessum árstíma.
„Vanalega er þetta rólegasti tími
ársins. Janúar og febrúar em þess
vegna heppilegur tími fyrir okkur.
Það breytir öllu að fá þessa und-
ankeppni í stað þess að einn höf-
undur taki að sér að semja lag eins
og undanfarin ár. Tónlistarlífið hér
tekur mikinn fjörkipp og líf færist í
fólk," bendir hún á og bætir við að
það eigi eftir að skila sér í aukinni