Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2006, Side 42
42 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006
Helgarblað DV
Vala Grand Gregory kallar hún sig og undir því nafni þekkja allir 1 Keflavík hana Völu. Hún
fæddist drengur en segist aldrei hafa verið það. Stelpa hafi hún verið svo lengi sem hún muni.
Hún er ekki alveg reiðubúin að stíga skrefið til fulls á næstunni en er ákveðin í að gera það
þegar fram líða stundir. Nú hefur Vala svo mikið að gera við að lifa lífinu sem hún segir að sé
æðislegt. Hún spjallaði stund við Bergljótu Davíðsdóttur um allt þetta og auk þess unga fólkið
og frjálsræðið í kynferðismálum sem hún er ekki par ánægð með.
Vala eða Valur, það skiptir ekki
öllu máli fyrir Völu Grand
Gregory Einarsdóttur hvað
stendur á pappírum. Á ökuskírteini
hennar stendur skýrum stöfum Val-
ur og það er nafnið sem henni var
gefið þegar hún var vatni ausin á
sínum tfma.
Enda voru foreldrar hennar í
engum vafa um að þau hefðu eign-
ast dreng. En hún var ekki há í loft-
inu þegar tvær grímur fóru að renna
á fólkið hennar. Hún hegðaði sér
eins og stelpa, lék sér að dúkkum og
vildi vera fín. Sjálf segist hún ekki
hafa hugsað neitt um það fyrr en
hún komst til vits og ára og fór að
heyra háðsglósur félaga sinna í skól-
anum. Hún var ekki eins og aðrir
strákar, langaði ekki til að vera í
þeirra grófu leikjum, náði illa sam-
bandi við hugsanagang þeirra og á
Völu bitnaði stríðni þeirra og háðs-
glósur.
Ég elska að klæða mig fínt
Já, Vala er stelpa og ekkert annað;
ef maður vissi ekki annað hvarflaði
ekki annað að neinum. Hún er vel
snyrt og flott klædd og segist vera
fatasjúk.
„Ég hef ógeðslega gaman af að
kaupa mér föt og snyrtivörur. Ég
elska að klæða mig flott," segir hún
„Ég er kona og hef
alltafverið það, hvað
mikið sem ég reyndi,
þá get ég bara alls
ekki verið strákur.
Fæddist bara með typpi
„Ég er kona og hef alltaf verið
það, hvað mikið sem ég reyndi, þá
get ég bara alls ekki verið strákur.
Hvað myndir þú gera? Ekki getur þú
verið annað en kona, ég er alveg
eins. Ég fæddist bara með typpi og
langar ekkert að hafa það,“ segir hún
og leggur mikla áherslu á orð sín
með höndunum.
Vala kom fram í Kastljósi Sjón-
varpsins ekki fyrir alls löngu og vakti
mikla athygli fyrir opinskáa fram-
komu og hreinskilni um sjálfa sig.
Hvað myndir þú gera?
Ekki getur þú verið
annað en kona, ég er
alveg eins. Ég fæddist
bara með typpi og
langar ekkert að hafa
það."
Miie
hrifin. Vala hefur heldur ekki neina
skeggrót og með lungamjúkt andlit.
„Eg tek skeggrótina af með vaxi,“
segir hún og horfir hissa á mig að ég
skuli yfirhöfuð spyrja. Bætir við að
það noti allar stelpur vax til að ná
óæskilegum hárum af líkamanum
og það viti allir.
o
Eg & kma gg M
Hún segist aidrei hafa verið feimin
við að viðurkenna kvenleika sinn.
Það hafi ekki dulist neinum og fyrir
fermingu tók hún skrefið til hálfs og
fór að ganga í kvenmannsfötum og
snyrta sig. Útlit hennar gaf ekki til-
efni til annars en að ætla að þar færi
ung stúlka; meira að segja sæt ung
stúlka.
■-J „Það var bara eðlilegt fyrir mig og
mér fannst það aldrei neitt mál. En
ég gekk í gegnum ýmislegt þegar ég
var yngri og fékk alls kyns háðsglós-
ur og athugasemdir frá krökkunum.
Nú taka allir mér eins og ég er og
kalla mig Völu. Ég held að fólki finn-
ist ég bara vera venjuleg stelpa,"
segir hún áköf og spyr hvort mér
finnist það ekki líka.
Vala hefur í nokkum tíma velt því
fyrir sér að fara í kynskiptiaðgerð og
aflað sér upplýsinga um það. Hún
segist eigi að síður ætía að láta það
bíða aðeins lengur. Hún sé nú bara
nítján ára og nægur tími til stefnu.
„Ég hef ofsalega gaman af að lifa
og mig langar svo margt. Ég vil ekki
hafa áhyggjur af þessu strax. Ég þarf
að fara í hormónameðferð í þrjú ár
áður og pabbi segir að það breyti svo
skapinu í manni. Ég er alltaf svo kát
og glöð og ég vil ekki verða dauf og
leiðinleg. Ég bara þori því ekki
strax," segir hún áköf.
Eina vandamálið eru aukalíf-
færin
Hún segist aldrei vera leið eða
pirmð, eigi fuilt af vinum og það sé
„Ég hefgefið mörgum
stelpum ráð. Og
veistu hvað ég segi
við þær? Ekki vera
druslur. Ekki bara
sofa hjá næsta strák.
Ég segi þeim að fara
varlega og gera það
ekki fyrr en þær séu
alveg á föstu eða þeg-
ar þær eru orðnar
svona átján, nítján
ára. Þá vilja allir
strákarnir ykkur."
bókstaflega svo gaman að vera til
eins og hún er að líklega sé best að
bíða.
„Kannski er líka best að vera að-
eins eldri. Nú vil ég bara láta drauma
mína rætast og ekki hugsa um
þetta," segir hún og orkan og gleðin
geislar frá henni.
En hvað með kynlífið. Er ekki
erfitt að lifa eðlilegu kynlífi með
strákum?
„Það er nefnilega það, það er
vandamáiið. Eina vandamálið," seg-
ir hún og slær hendi í borðið til að
leggja áherslu á orð sín.
En hvað gerir hún þá núna, ekki
er hún með stelpum?
„Ertu vitíaus, manneskja. Ég er
ekki samkynhneigð. Elskan mín, en
það er hægt að redda sér. Maður
getur alltaf notað bakholuna," segir
hún og slær Iétt í öxlina á mér.
En strákamir, vilja þeir það?
„Vilja! Hvaðan ert þú? Veistu ekki
að 90% af öllum unglingum gera
þetta?" segir Vala meira en lítið hissa
og hallar sér fram í sætinu.
Nei, það vissi ég ekki og hún
hristir höfuðið yfir fákunnáttu
minni og breyttum tímum í kynferð-
ismálum unglinga. Lítur síðan fram
og horfir yfir hóp ungra manna á rit-
stjórn DV. Bendir á þá og segir:
„Ég get lofað þér að allir þessir
kallar þtuna frammi myndu ekki
segja nei, ef þeim væri boðið það. Og
ég er líka afveg viss um að þessir
yngri gera það oft," bætir hún við og
segir að svona sé nú ísland í dag.
Druslulegt af stelpum að
ganga á milli stráka
Vala segir að stelpur séu ótrúlega
ungar þegar þær byrji að stunda
kynlíf. Og allt sé prófað, ekki bara
það hefðbundna.
„Mér finnst það druslulegt af
stelpum að ganga á milli stráka. Þær
verða bara sjúskaðar og ömurlegar.
Ég segi við allar ungar stelpur: ekki
ganga á milli stráka og sofa hjá
þeim. Sýnið sjálfum ykkur virðingu
og ekki bara fara með næsta strák og
sofa hjá honum. Strákar vilja ekki
svoleiðis stelpur nema bara til nota
þær. Það segi ég og það hafa margir
strákar sagt mér," segir Vala og er
mikið niðri fyrir.
Hún segir að það komi oft til sín
stelpur og vilji fá ráð.
„Ég hef gefið mörgum stelpum
ráð. Og veistu hvað ég segi við þær?
Ekki vera druslur. Ekki bara sofa hjá
næsta strák. Ég segi þeim að fara
varlega og gera það ekki fyrr en þær
séu alveg á föstu eða þegar þær eru
orðnar svona átján, nítján ára. Þá
vilja allir strákarnir ykkur," segir ég
og margar sem ég þekki hafa farið
eftir ráðunum sem ég gef þeim. Ég
segi þeim líka að vera snyrtilegar og
hugsa vel um útíitið og ég hef hjálp-
að stelpum sem hafa orðið fyrir ein-
elti og sagt þeim hvað þær eigi að
gera. Það hefur sko hjálpað þeim,"
segir Vala og segist vita hvað hún sé
að tala um. Hún hafi orðið íyrir
miklu eineltí þegar hún var ung.
„Ég hefði ekki lifað ef ég hefði
ekki haft íjölskyldu mína sem ég gat
talað við og sagt allt. Þau hjálpuðu
mér sko mikið. Og ég get sagt þér
elskan mín að fjölskyldan mín hjálp-
aði mér. Þau eru æðisleg," segir hún
með mikilli áherslu.
Er aldrei í vondu skapi
Vala er lifandi og skemmtíleg.
Það er ekki hægt annað en að kom-
ast í gott skap nærri henni og af-
skaplega gaman að tala við hana.
Skoðanir hennar ákveðnar og hún
veit hvað hún vill.
„Ég er ofvirk og var sett á lyf. En
svo vildi ég ekki taka þau og mér líð-
ur ofboðslega vel svona. Ég er aldrei
í vondu skapi og allt sem ég geri er
skemmtilegt. Mér finnst æðislegt að