Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2006, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 29. APRlL 2006
Fréttir DV
Stefanía Arna Marinósdóttir
skrifaði Lesley hótunarbréf
Hótaöi Leysley öllu illu ef hún hætti
ekki aö vara fólk við Aquanetworld.
Laugardag kl.l 1-16
Sunnudag kl. 12-16
Mánudag kl. 11-16
Hjá okkur fmnur þú örugglega ferðavagn við þitt hæfi.
Komdu og kynntu þér úrvalið!
SEGLAGERÐIN ÆGI
www.seglagerdin.is
Eyjarslóð 5, sími 511 2200
ÞU FÆRÐ FERÐAVAGNINN HJA OKKUR
Viðskiptahall
inn aldrei
meiri
Mikill halli var á vöru-
skiptum við útlönd í síð-
asta mánuði, að miklu
leyti vegna mikils innflutn-
ings fjárfesting-
ar- og rekstrar-
vara. Samkvæmt
nýbirtum tölum
Hagstofunnar
nam innflutn-
ingur í mars 33,3
milljörðum króna
og vörur voru
fluttar út fyrir 19.9
milljarða. Vöru-
skiptahallinn
nam því 13,4 milljörðum
króna og hefur hann ekki
verið meiri síðustu áratugi.
Greining Glitnis segir frá.
Kosið um nafn
fyrirnorðan
Örnefnanefnd hefur af-
greitt erindi frá verkefnis-
stjórn vegna sameiningar
Húsavíkurbæjar, Keldunes-
hrepps, Öxarfjarðarhrepps
og Rauf-
arhafnar-
hrepps.
Kemur
fram að
nefndin
hafi sent
Örnefnanefnd 14 tillögur að
nafni sameinaðs sveitarfé-
lags til umsagnar. Mælt er
með þremur tillögum. Þau
eru: Gljúfrabyggð, Norð-
austurbyggð og Norður-
þing. Samfara sveitarstjórn-
arkosningum þann 27. maí
n.k. verður verður kosið á
milli þessara nafna.
Mark Ashley Wells, forsvarsmaður píramídafyrirtækisins Aquanetworld, reyndi i ágúst
á síðasta ári að sannfæra lögfræðing Lesley Ágústsson'um að taka ekki að sér mál henn-
ar. Lesley Ágústsson lagði mikið fé i Aquanetworld og var lofað arði sem hún sá aldrei
eina krónu af. Hún ákvað að kæra Mark fyrir að hafa svikið af henni fé þegar hann neit-
aði henni um að endurgreiða henni það sem hún hafði greitt i fyrirtækið.
Vilhjálmur Bergs lögfræðingur fékk bréf frá Mark Ashley Wells,
forsvarsmanni Aquanetworld píramídafyrirtækisins, þar sem
Mark er að reyna að sannfæra Vilhjálm um að taka ekki að sér
mál Lesley Ágústsson gegn Aquanetworld. Segir Mark í bréfinu
að Lesley sé andlega vanheil og muni ekki vera borgunarmaður
fyrir launum lögmannsins.
„Ég held að Mark sé orðinn það Aquanetworld vegna samnings sem
örvæntingafullur að hann not- hún gerði við fyrirtækið sem síðan
ar þessa aðferð til að stoppa mig í stóð ekki við gefin loforð og sveik af
málsókn minni gegn honum," segir henni miklar íjárhæðir. í bréflnu sem
Lesley Ágústsson, sem höfðaði mál hannsendirVUhjálmiBergs, lögfiræð-
gegn Mark Ashley ingi Lesley, segir Mark orðrétt: „Ég vil
hjálpa þér að hafa ekki lögmanns-
stofu þína að athlægi með því að taka
mál þessarar konu." Annars staðar í
bréfinu segir Mark: „Þessi kona
hefur sýnt alvarlegt andlegt
ójafnvægi og logið til um
þunganir og fósturlát... ef
þú tekur þetta mál að þér
verður það
gróft
órétt-
Wells,
svars-
manni
læti
Mark Ashley Wells, forsvarsmaður
Aquanetworld pýramídafyrirtækisins
Hótaði lögfræðingi Lesley öllu illu efhann
tæki að sér mál hennar.
soun
nma
um.
Lesley Ágústsson missti mikiö fé í
viðskiptum sínum við Aquanetworld
Hún telur aö illa gangi hjá fyrirtækinu og
aö Mark sé farinn aflandi brott.
Varar lögfræðinginn við
peningaleysi Lesley
í lok bréfsins segir Mark við lög-
fræðing Lesley að hún sé peningalaus
og ef hún tapi málinu fái lögfræðing-
urinn ekki greiddan lögffæðikostnað
málsins. Lesley segir að þessi fram-
koma Marks beri vott um það hversu
hræddur hann sé að upp um hann
komist því Lesley segir að fýrirtæki
hans Aquanetworld sé bara fyrirslátt-
ur og peningaplokk og enginn eigi
eftir að sjá hagnað af þeim peningum
sem hann leggur í fyrirtækið.
Stakk af frá Kýpur
Samkvæmt heimildum frá rann-
sóknarlögreglu á Kýpur, Thalía að
nafni, sem Lesley átti samtal við, virð-
ist Mark Wells hafa haft á brott með
sér frá Kýpur um 750 þúsund pund,
sem samsvarar tæpum hundrað millj -
ónum króna, frá fólki sem lagði pen-
inga í fyrirtækið Aquanetworld. Sam-
kvæmt rannsóknarlögreglunni Thalía
stendur yfir á Kýpur rannsókn á Aqu-
anetworld þar sem íjöldi manns hafa
kært fyrirtækið fyrir að hafa af sér fé
og hafi ekki staðið við loforð sín. Á ís-
landi hefur Aquanetworld lofað fólki
síðan í ágúst 2004 að tölvukerfið Gi-
ant verði tekið í notkun og með því
kerfi fái fólk arð vegna fjár-
festinga þess í fyrirtækinu.
Samkvæmt heimildum DV
hjá Skýrr, sem er að setja
upp Giants tölvukerfið hef-
ur vinna við það verið stöðvuð vegna
vangoldinna reikninga Aquanet-
world til Skýrr.
Markfarinn frá íslandi
Lesley Ágústsson segir að Mark
hafi ekki verið á landinu í tæpa tvo
mánuði og telur hún ekki ólfldegt að
hann sé farinn fyrir fullt og allt og
stunginn af með peninga íslending-
anna sem lagt hafa fé í fyrirtækið.
Hún segir að hann muni finna aðra
eyju til að byrja upp á nýtt með það
sem Lesley kallar svikamyllu. „Ef ég
get stoppað Aquanetworld og Mark í
því að svíkja fé út úr fleiri saklausum
borgurum eins og hann sveik mig, þá
hef ég unnið gott starf," segir Lesley.
Enginn svarar hjá
Aquanetworld
Ekki hefur enn tekist að ná tali af
Mark Ashley Wells vegna þessa máls
því hann er ekki með neina skráða
síma né fyrirtæki hans Aquanetworld.
Stefama Arna Marinósdóttir hefur
starfað íyrir Aquanetworld og meðal
annars sent Lesley Ágústsson bréfþar
sem hún hótar Lesley að hætti hún
ekki að vara fólk við Aquanetworld
muni hún skemma fyrir henni í for-
ræðismáli Lesleyj og fyrrum manns
hennar. DV hafði samband við Stef-
aníu og spurði hana um þetta bréf og
starfsemi Aquanetworld en Stefanía
neitaði að tjá sig við blaðið.
-
OPIÐ UM HELCINA: